Meirihlutinn springur í annað sinn 15. mars 2005 00:01
Meirihlutinn í bæjarstjórn Blönduóss er sprunginn. Þetta er í annað sinn á kjörtímabilinu sem mynda þarf nýjan meirihluta. H-listi vinstri manna og óháðra sleit í gær meirihlutasamstarfi við bæjarmálafélagið Hnjúka, Á-lista, í bæjarstjórn Blönduósbæjar. Að sögn Valgarðs Hilmarssonar, oddvita H-listamanna, var það einhliða ákvörðun Valdimars Guðmannssonar, oddvita Á-listans, að setja í gang vinnu við undirbúning þjónustuhúss við tjaldstæði bæjarins sem gerði útslagið. Valgarður segir að ekki hafi verið búið að ákveða endanlega í bæjarstjórn hvernig þetta yrði gert og H-lista menn hafi ekki endilega verið sammála Valdimari, sem er formaður bæjarráðs, um hvaða útfærsla væri sú besta. Sjö eru í bæjarstjórn Blönduósbæjar, þrír frá H-lista, tveir frá Á-lista og tveir frá Sjálfstæðisflokki. Á-listi og Sjálfstæðismenn mynduðu meirihluta eftir síðustu kosningar en það samstarf stóð aðeins í þrjátíu og átta daga. Það er því aðeins ein möguleg samsetning meirihluta eftir og að sögn Valgarðs standa viðræður fulltrúa H-lista og Sjálfstæðisflokks yfir núna og er hann bjartsýnn á að flokkarnir nái saman fljótlega. Ekki náðist í Valdimar Guðmannsson, oddvita Á-listans.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagræðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Sjá meira