Skífan sektuð um 65 milljónir 23. september 2006 03:45 Í verslun Hagkaupa Samningur sem Skífan gerði við Hagkaup árin 2003 og 2004 braut í bága við samkeppnislög.
Viðskipti Skífan þarf að greiða 65 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Áfrýjunarnefnd staðfesti í gær fyrri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þar að lútandi. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 16. júní var Skífan (sem nú heitir Dagur Group) fundin sek um að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga. „Þetta gerði Skífan með gerð ólögmætra samninga við Hagkaup um sölu á hljómdiskum og tölvuleikjum, annars vegar á árinu 2003 og hins vegar á árinu 2004,“ segir Samkeppniseftirlitið, en Hagkaup skuldbundu sig til að kaupa í heildsölu tiltekið hlutfall af diskum og leikjum, eingöngu af Skífunni. „Með samningunum voru keppinautar Skífunnar í heildsölu á hinum tilgreindu vörum nánast útilokaðir frá viðskiptum við Hagkaup,“ segir Samkeppniseftirlitið og kveður Skífuna með þessu hafa ítrekað brot sitt sem fjallað hafi verið um í ákvörðun samkeppnisráðs árið 2001 og í hæstaréttardómi árið 2004. Dagur Group skaut málinu til áfrýjunarnefndar, sem telur að brot Skífunnar hafi verið bæði augljós og alvarleg og að forsvarsmönnum fyrirtækisins hafi mátt vera ljóst að að umræddir samningar færu gegn samkeppnislögum.
Innlent Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira