Aldrei heyrt um 90 milljarða 6. nóvember 2006 06:45 Sigurður snævarr. Kannast ekki við verðmat upp á 90 milljarða.
Sigurður Snævarr borgarhagfræðingur segir hvorki borgaryfirvöld í Reykjavík né viðskiptaráðgjöf Par X IBM kannast við verðmætamat á Landsvirkjun upp á 91,2 milljarða króna. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir borgarstjórn hafa samþykkt að selja Landsvirkjun á allt að fimmtán milljarða lægra verði en verðmat hefði gefið tilefni til. Sigurður segir þetta rangt hjá Degi og ekki í takt við það mat sem stuðst hefði verið við þegar borgaryfirvöld áttu í samningum við íslenska ríkið um verð á Landsvirkjun. „Ef Landsvirkjun hefur verið metin á rúmlega 90 milljarða króna í tíð R-listans, þá spyr maður sig hvers vegna ákveðið var að selja ekki hlutinn. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, segir Landsvirkjun hafa verið metna á 56 milljarða, þegar slitnaði upp úr viðræðunum, og ástæðan fyrir því að hún vitnar til þeirrar tölu er sú að það er rétt tala,“ segir Sigurður. Sigurður segir ýmis verð hafa verið reiknuð út á grundvelli breytilegra forsenda, þegar unnið var að verðmati á Landsvirkjun, en ekki sé hægt að bera saman óskyld verðmöt þegar horft sé til heildarverðmats á fyrirtækinu. „Ég get mér þess til, þó ég kannist ekki við þetta verðmat sem vitnað hefur verið til, að stuðst sé við mat sem ekki byggi á réttum forsendum og sé því ekki samanburðarhæft við verðið sem hluturinn seldist á.“
Innlent Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Sjá meira