Útilokar ekki að fjölga friðargæsluliðum 14. ágúst 2006 20:00
Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, leggur mikla áherslu á þátttöku Íslendinga í friðargæslu á Srí Lanka. Ákvörðun verður tekin síðar í vikunni en Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra útilokar ekki að íslenskum friðargæsluliðum verði fjölgað, þrátt fyrir vaxandi ólgu. Valgerður og Gahr Støre ræddu í morgun um samstarf ríkjanna og sameiginleg hagsmunamál, svo sem sjóræningjaveiðar og síldarmál. Ástandið á Srí Lanka þar sem friðargæsluliðar frá Íslandi og Noregi hafa verið að störfum var í brennidepli á fundinum enda hafa rósturnar þar aukist mjög að undanförnu. Gahr Støre segir þróunina uggvænlega og því hafi Norðmenn og Íslendingar sérstökum skyldum að gegna. Þrír kostir eru í stöðunni. Sá fyrsti er að kalla friðargæsluliðana heim, en eins og heyra mátti á norska utanríkisráðherranum er það ólíklegt. Í ljósi versnandi ástands og þeirrar staðreyndar að hinar Norðurlandaþjóðirnar eru farnar af vettvangi er ósennilegt að haldið verði í horfinu og þá er aðeins einn kostur eftir, að fjölga í liðinu. Hvort íslenska friðargæslan sé yfirleitt tilbúin til að takast á við þær aðstæður sem nú ríkja á Srí Lanka verður eflaust rætt næstu daga í ráðuneytinu en ákvörðunin á að liggja fyrir á næstu dögum.
Fréttir Innlent Mest lesið Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Fleiri fréttir Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Sjá meira