Auglýsingaskilti valda hræðslu í Boston 1. febrúar 2007 22:56 Auðsjáanlegt er að borgarbúar í Boston hafi búist við hinu versta þegar þessi skilti fóru að sjást um alla borg. MYND/AP
Lögreglan í Boston handtók í dag tvo menn sem höfðu sett upp 38 auglýsingaskilti víðsvegar um borgina. Skiltin þóttu minna á sprengjur í útliti. Varð það til þess að lögreglan setti í gang neyðaraðgerðir með hjálp strandgæslunnar, sprengjusveita, sérsveita og björgunarsveita. Umferð stöðvaðist víðs vegar um borgina vegna skiltanna. Talið er að viðbúnaðurinn hafi kostað borgina allt að 50 milljónir íslenskra króna. Auglýsingaskiltin voru hluti af herferð fyrir teiknimyndaseríuna „Aqua Teen Hunger Force" sem sýnd er á sjónvarpsstöðinni Cartoon Network. Á skiltunum, sem voru um einn meter á hæð, var mynd af söguhetju úr teiknimyndum að gefa dónalega bendingu á þann er á skiltið horfði. Á því voru einnig vírar, torkennilegir hlutir vafðir í límband og blikkandi ljós en sprengjusveitir sögðu það benda til þess að um sprengjur gæti verið að ræða. Mönnunum tveimur, sem höfðu sett skiltin upp, var síðan sleppt gegn tryggingu í kvöld. Hægt er sjá myndband þar sem þeir eru að gera skiltin á vefsíðunni www.zebbler.com.
Erlent Fréttir Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Fleiri fréttir Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Sjá meira