Dauðvona maður vann milljón dollara 13. febrúar 2007 23:13
Wayne Schenk, 51 árs, finnst hann ekki vera mjög heppinn maður þrátt fyrir að hafa unnið milljón dollara, eða um 68 milljónir íslenskra króna, í skafmiðahappadrætti New York ríkis. Hann greindist nefnilega með banvænt krabbamein aðeins fimm vikum áður. Schenk hefur biðlað til þeirra sem standa að happadrættinu um að borga honum þessar 68 milljónir í einu. Forsvarsmenn happadrættisins segja það ekki vera hægt. Peningana ætlar hann sér að nota í sérhæfða krabbameinsmeðferð. Susan Miller, talsmaður happadrættisins, sagði „Við höfum mikla samúð með honum en við verðum að fylgja lögum og reglum. Við erum tilbúin að flýta pappírsvinnunni ef hann getur samið við banka um að veita honum lán.“ Fyrirtækið segir að það verði að greiða honum 50 þúsund dollara á hverju ári í 20 ár eða gefa honum 400 þúsund dollara í einu. Ef hann tæki 400 þúsund dollarana, myndi hann þurfa að borga helming þeirra í skatt. Meðferðin sem Schenk ætlar sér í kostar um hálfa milljón dollara. Schenk hefur sett sig í samband við þingmann sem ætlar að leggja fram frumvarp um að happadrætti geti borgað út vinninga í heilu lagi við sérstakar aðstæður. Það er bara ekki víst að Schenk lifi nógu lengi.
Erlent Fréttir Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fleiri fréttir Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Sjá meira