Snæfell vann í spennuleik Elvar Geir Magnússon skrifar 7. apríl 2008 20:16 Snæfell vann í stórskemmtilegum leik.
Það var boðið upp á mikla skemmtun í Grindavík í kvöld þar sem heimamenn tóku á móti Snæfelli. Þetta var fyrsta viðureign þessara liða í undanúrslitum Íslandsmótsins en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í úrslit. Leikurinn var hnífjafn og æsispennandi frá byrjun en Snæfellingar höfðu þriggja stiga forystu í hálfleik. Staðan var jöfn 92-92 þegar mínúta var eftir af leiknum og heimamenn í sókn. Jamaal Williams setti þá niður tvö vítaskot en Justin Shouse svaraði með því að skora þrist fyrir Snæfell. Snæfellingar unnu síðan boltann en Grindvíkingar brutu. Magni Hafsteinsson setti bæði vítaskotin niður og staðan 94-97 þegar þrjár sekúndur voru eftir. Páll Axel Vilbergsson tók þriggja stiga skot og reyndi að tryggja Grindavík framlengingu en skotið fór ekki ofaní. Snæfellingar eru því komnir í ökumannssætið með þessum þriggja stiga sigri. Grindvíkingar virtust vera komnir með leikinn í sínar hendur en Snæfellingar unnu leikinn með mögnuðum lokaspretti. Jamaal Williams skoraði 32 stig fyrir Grindavík, Adam Darboe var með 22 og Páll Axel 15 stig. Hjá Snæfelli var Justin Shouse stigahæstur með 17 stig, Slobodan Subasic 16 og Sigurður Þorvaldsson 15.
Dominos-deild karla Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Enski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Fleiri fréttir Meistararnir á toppnum fyrir lokaslaginn Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum Rodman í heiðurshöll WWE Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Ármann fékk skell í kveðjugjöf Tryggvi fagnaði eftir trylli í Pýreneafjöllum Hamar/Þór - Keflavík 88-85 | Keflavík fékk Hamarshögg í Þorlákshöfn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 115-104 | Álftanes á leið í sumarfrí Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Tilþrifin: Pungur og plakat Lungað féll saman hjá NBA-stjörnu Varði skot mótherja með skónum sínum „Skutum í hringinn en ekki í körfuna“ Höttur endurheimti sætið í Bónus-deildinni Uppgjör: Stjarnan - ÍA 113-102 | Meistararnir mörðu Skagamenn LeBron James jafnaði leikjamet Robert Parish í NBA Fresta leik á Króknum vegna veðurs Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Uppgjörið:Keflavík - Valur 85-88| Valur tryggði heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð „Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“ Uppgjör: Þór Þ.-Njarðvík 109 - 72: Þórsarar lifa í voninni eftir öflugan sigur Uppgjör: Ármann-Grindavík 103-87 | Rúlluðu upp deildarmeisturunum „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Friðrik Leó og félagar fóru auðveldlega yfir fyrstu hindrunina Uppgjörið: ÍR - KR 102-99 | Hetjuleg endurkoma ÍR-inga Sundskýlurnar slógu hitt liðið út af laginu og Almar komst áfram Náðu loksins saman um að bjarga WNBA eftir hundrað klukkutíma viðræður Tryggvi og félagar í undanúrslit FIBA Europe-bikarsins Sjá meira