Einar: Vinnum á sunnudag og þetta fer í fimm leiki Guðmundur Marínó Ingvarsson skrifar 1. maí 2009 22:15 Einar Jónsson, þjálfari Fram. Mynd/Daníel
Fram lék afleitan sóknarleik gegn Stjörnunni í kvöld sem kristallast í fyrstu sókn leiksins þegar liðið kastaði boltanum útaf vellinum eftir aðeins átta sekúndna leik án þess að Stjarnan hefði nein áhrif á sóknarmenn Fram. „Það gaf tóninn," sagði Einar Jónsson þjálfari Fram í leikslok. „Varnarleikurinn var fínn lengst af en sóknarleikurinn var algjör hörmung. Við erum örugglega með fleiri tapaða bolta en skotfeila og þú vinnur ekki leiki þannig. Eigum við ekki að segja að við fáum sóknarleikinn sem við spiluðum í fyrsta leiknum og varnarleikinn sem við spiluðum í dag í næsta leik og þá klárum við þetta." Fram virðist ekki ná upp sömu baráttu og sjálfstrausti sem liðið sýndi gegn Haukum í undanúrslitum. „Er það ekki alltaf þannig að það vantar baráttuna og trúnna þegar maður tapar. Mér leið mjög vel fyrir leikinn og fannst þær vera klárar og tilbúnar í leikinn en voru það greinilega ekki. Leikmenn voru að berjast í vörninni og ég vil ekki taka það af þeim. Við stóðum mjög vel varnarlega og við töpuðum þessum leik á sókninni, það er ekki flóknara en það." Fram er nú komið upp við vegg og má ekki tapa fleiri leikjum ætli liðið að landa titlinum í ár. „Þessi margfrægi veggur. Ef menn eru ekki tilbúnir í næsta leik þá eru menn aldrei tilbúnir. Við leggjumst ekki niður og látum taka okkur í ósmurt. Við berjumst fram í rauðan dauðan og ef við vinnum næsta leik förum við með þetta í fimm leiki, ég get lofað því. Við vinnum á sunnudag og þetta fer í fimm leiki," sagði Einar að lokum við Vísi.
Olís-deild kvenna Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira