Hanna Guðrún: Við þurfum að fá meira frá Ramune Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2010 22:13 Hanna Guðrún Stefánsdóttir á ferðinni í kvöld. Mynd/Vilhelm
Hanna Guðrún Stefánsdóttir, fyrirliði Hauka, átti erfitt með að sætta sig við tapið á móti Val í kvöld í undanúrslitum N1 deildar kvenna. Haukar voru 18-13 yfir þegar 20 mínútur voru eftir en leikur liðsins hrundi á síðustu 20 mínútunum sem töpuðust 5-15. „Ég er bara hundfúl. Við verðum að fara finna jafnvægið í okkar leik og fara að klára leiki. Sérstaklega svona leik sem við eigum þar til að við förum að klúðra þessu í endann," sagði Hanna. „Við erum með sama lið og í fyrra og þurfum bara að laga hausinn á okkur. Við þurfum að hreinsa hausinn okkar og hafa trú á sjálfum okkur því við getum þetta fyllilega. Við erum með fínan mannskap og ég veit ekki hvað er búið að vera að okkur í vetur," sagði Hanna. Ramune Pekarskyte hjálpaði ekki mikið til í leiknum í kvöld og virkaði bæði kraftlaus og áhugalítil. Hún var tekin úr umferð stærsta hluta leiksins og gerði lítið í að koma sér inn í sóknarleikinn. „Hún er búin að vera tekin úr umferð í fimm ár þannig að þetta er ekkert nýtt fyrir okkur. Maður verður að vera á tánum og reyna að vera alltaf á hreyfingu þegar maður er tekinn úr umferð," segir Hanna en Ramune skoraði 2 mörk úr 8 skotum í leiknum. „Mér finnst að Ramune megi skjóta meira. Hún er 190 sm á hæð en er bara í einhverju hnoði. Við þurfum að fá meira frá henni og það þýðir ekkert að vera í einhverju hnoði því hún þarf að skjóta á markið," sagði Hanna sem var markahæst í sínu liði með átta mörk.
Olís-deild kvenna Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira