Memphis eyðilagði MVP-veislu Golden State Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. maí 2015 07:30
Memphis Grizzlies eyðilagði MVP-veislu Golden State í nótt þegar liðið jafnaði metin í einvígi liðanna, 1-1, í undanúrslitum vesturdeildar NBA-deildarinnar með flottum útisigri, 97-90. Fyrir leikinn fékk Stephen Curry, leikstjórnandi Golden State, afhent verðlaunin fyrir að vera kosinn besti leikmaður deildarinnar, MVP. Hann hélt upp á það með 19 stigum og 6 stoðsendingum, en hann var stigahæstur í liði heimamanna á undan Draymond Green og Leandro Barbosa sem báðir skoruðu 14 stig. Mike Conley, leikstjórnandi Memphis, sneri aftur eftir að spila ekki fyrsta leikinn vegna meiðsla og skoraði 22 stig fyrir gestina. Zach Randolph skoraði 20 stig og tók 7 fráköst. Rimman færir sig nú yfir til Memphis í stöðunni 1-1, en það var hrikalega mikilvægt fyrir Grizzlies að fara ekki 2-0 undir aftur heim. Mike Conley fer á kostum: Atlanta Hawks, liðið sem vann austurdeildina, jafnaði metin gegn Washington Wizards í einvígi liðanna, 106-90. Washington vann óvæntan útisigur í fyrsta leik. Gestirnir voru án John Wall í leiknum og það nýttu heimamenn sér. Ramon Sessions kom þó sterkur inn fyrir hann og skoraði 21 stig, en Bradley Beal skoraði 20 stig. Hjá heimamönnum var DeMarre Carroll stigahæstur með 22 stig, en þeir Paul Millsap og miðherjinn Al Horford skoruðu báðir 18 stig. Staðan í rimmu liðanna er 1-1.Tröllatroð Ramon Sessions:
NBA Mest lesið Frakkland - Írak | Mbappé áfram í ham? Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Fótbolti Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Sport Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Óskar Smári eftir sigurinn: „Birna er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum“ Fótbolti Aðalsteinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnusemi dugnaður og samvinna skilaði sigrinum“ Fótbolti „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Sjá meira