Kemst Aníta bakdyramegin inn á HM í Peking? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2015 12:00 Aníta Hinriksdóttir. Visir/EPA
Aníta Hinriksdóttir var aðeins fimmtán hundraðshlutum frá því að ná lágmörkum fyrir HM í frjálsum sem fer fram í Peking seinna í þessum mánuðum en hún gæti samt fengið að taka þátt. Frjálsíþróttasambandið segir frá því á heimasíðu sinni að Aníta sé í úrvalshópi og gæti því hlotið keppnisrétt á HM en það kemur í ljós í dag eða á morgun. Alþjóða frjálsíþróttasambandið breytti á þessu ári vinnureglu sinni við skilgreiningu á keppnisrétti íþróttamanna á HM. Gefin voru út eitt árangursviðmið í hverri grein sem veitti sérsamböndum þjóða einhliða ákvörðun um þátttökurétt íþróttamanna. Árangursviðmið IAAF, Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, voru sögulega ströng en samhliða var ákveðinn fjöldi keppenda eftir greinum skilgreindur. Í ýmsum greinum eru færri sem náðu árangursviðmiðum IAAF en sem nam fjölda þeirra keppenda sem IAAf hafði fyrirfram ákveðið að öðluðust þátttökurétt á mótinu. Nokkrar þjóðir eiga fleiri en þrjá íþróttamenn sem náðu árangursviðmiði IAAF í einhverri grein en senda ekki alla á HM. Skráningum var skilað inn í gær og keppnislistar birtir í dag eða á morgun. Aníta Hinriksdóttir á því möguleika á að komast á HM samkvæmt skilgreiningu IAAF um fjölda keppenda sem fá þátttökurétt í 800 metra hlaupi kvenna. Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir er eini íslenski keppandinn sem hefur tryggt sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í Peking sem hefst 22. ágúst næstkomandi.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppnum Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Féll í yfirlið í miðjum leik Eggert Þór komst í 8-liða úrslit Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram „Klappað fyrir manni þegar maður mætti“ Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Tékki til Njarðvíkur „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Sjá meira