Bolt og Gatlin forðast hvor annan á móti í næsta mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. ágúst 2015 11:00 Usain Bolt og Justin Gatlin unnu gull og silfur í tveimur greinum á HM. Vísir/Getty
Tvö einvígi spretthlauparanna Usain Bolt og Justin Gatlin í 100 og 200 metra hlaupi á HM í frjálsum íþróttum voru í hópi hápunkta heimsmeistaramótsins. Það var beðið með mikilli eftirvæntingu eftir því hvort Usain Bolt tækist að halda sigurgöngu sinni áfram á stórmótum á móti hinum sjóðheita Gatlin sem var búinn að hlaupa best á árinu. Justin Gatlin var hársbreidd frá sigri í 100 metra hlaupinu en Bolt tókst að vinna það og hafði síðan mikla yfirburði í 200 metra hlaupinu. Þeir Bolt og Gatlin keppa báðir á Demantamótinu í Brussel í næsta mánuði en það verður þó ekki annað einvígi á milli þeirra. Justin Gatlin keppir nefnilega bara í 100 metra hlaupinu á mótinu í Brussel á sama tíma og Usain Bolt keppir bara í 200 metra hlaupi ef þá heilsan leyfir. Bolt hefur ekki skipulagt fleiri mót en það sem verður í Brussel. „Hann mun keppa í Brussel ef heilsan verður góð. Þegar hann kemur til Evrópu í næstu viku þá sjáum við hvernig honum líður. Stóra málið er Ríó," sagði Ricky Simms, umboðsmaður Usain Bolt við Reuters. Usain Bolt og Justin Gatlin voru þarna að mætast í fyrsta sinn frá árinu 2013 en þá vann Bolt á meðan að Gatlin endaði í 4. sæti. Bolt er búinn að vinna 8 af 10 hlaupum þeirra félaga.
Frjálsar íþróttir Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Landa Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Sjá meira