Meðferðin á einstöku nafni Hrafnhild löngu hætt að pirra hana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2015 06:30 Hrafnhild Eir R Hermóðsdóttir hefur byrjað innanhússtímabilið mjög vel. vísir/Valli
ÍR-ingurinn Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir kom í mark á 7,56 sekúndum í 60 metra hlaupi á Stórmóti ÍR um síðustu helgi og er farin að ógna verulega 19 ára Íslandsmeti Geirlaugar B. Geirlaugsdóttur. Hrafnhild bætti sig þarna verulega og er nú orðin önnur fljótasta íslenska konan í þessari grein frá upphafi. „Það er alltaf gaman að ná góðu hlaupi og það hefur verið markmiðið lengi að komast nálægt þessu Íslandsmeti,“ segir Hrafnhild Eir sem vann Hafdísi Sigurðardóttur eftir spennandi hlaup.Hefur keppt lengi við Hafdísi „Við Hafdís erum góðar vinkonur og búnar að keppa lengi hvor við aðra eða bara síðan ég byrjaði í frjálsum. Sigurinn er alltaf sætur og þá sérstaklega þegar maður eru að keppa á móti svona góðum andstæðingi því þá er þetta ennþá sætara,“ segir Hrafnhild. Það er líka stutt á milli móta þessa dagana og um komandi helgi fer Meistaramót Íslands fram í Kaplakrika. „Takmarkið er bara að gera enn betur heldur en um síðustu helgi. Draumurinn er að komast á EM,“ segir Hrafnhild en lágmarkið inn á EM er 7,55 sekúndur. Mmet Geirlaugar er 7,54 sek. „Á ég ekki bara setja stefnuna á það að ná þessu hvoru tveggja. Það væri gaman. Að sjálfsögðu verður maður að láta sig dreyma og setja sér markmið ef maður ætlar að ná eitthvað langt. Ég hef sett mér það markmið að stefna á það og leyfi mér að dreyma um það,“ segir Hrafnhild. Hrafnhild og Hafdís munu berjast um gullið í 60 metra hlaupinu og 200 metra hlaupinu um helgina og það verður ekki í fyrsta sinn. „Við höfum oftar en einu sinni verið herbergisfélagar í landsliðsferðum. Ég held að við séum alveg að toga hvor aðra áfram. Við vitum hvor af annarri og þá verður keppnin meiri og betri árangur kemur fyrir vikið,“ segir Hrafnhild. Hrafnhild kom frekar seint inn í frjálsíþróttirnar á sínum tíma. „Ég æfði handbolta í sjö ár eða alveg þangað til að ég varð sautján ára. Ég hætti þá í handboltanum og besta vinkona mín var að æfa frjálsar. Ég ákvað að skella mér á æfingu og þá varð ekki aftur snúið,“ segir Hrafnhild sem var væntanlega öflug í hraðaupphlaupunum í handboltanum. „Ég átti nokkur góð hraðaupphlaup á sínum tíma,“ segir Hrafnhild.vísir/valliSpyr bara kærastann Hún viðurkennir að hún viti ekki mikið um frjálsar og að hún sé ekki með sína tíma á hreinu. Næsta æfing og næsta hlaup skipti mestu máli. „Oft þegar ég er spurð um hvaða tíma ég á best í hlaupum þá þarf ég yfirleitt að spyrja einhvern annan. Ég man aldrei á hvaða tímum ég er að hlaupa. Ég man svona sirka en ég spyr oft kærastann. Hann er líka í frjálsum og heldur utan um þetta,“ segir Hrafnhild en kærasti hennar er langstökkvarinn Þorsteinn Ingvarsson. Hrafnhild ber sérstakt nafn og það hefur sína sögu. „Ég er sú eina á Íslandi sem heitir Hrafnhild. Amma mín er hálfur Sami og heitir Ragnhild. Þetta kemur þaðan. Það mátti ekki skýra mig þessu nefni á sínum tíma og mamma mín lenti í miklu basli við að fá þetta í gegn,“ segir Hrafnhild en hún segir ennfremur að nafn hennar hafi fengið alls kyns meðferð í gegnum tíðina. „Ótrúlegt en satt, þá er það eiginlega hætt að pirra mig því ég lendi svo oft í því. Það pirrar meira fólkið í kringum mig. Ég er búin að heita mörgum nöfnum á ýmsum stöðum,“ segir Hrafnhild. Hrafnhild segir að árangurinn í ár sé því mikið að þakka að hún hefur getað æft í um tvö ár án þess að meiðast. „Það hefur ekkert verið að stoppa mig. Ég held að það sé að skila sér núna að geta æft reglulega og þurfa ekki að vera að halda aftur af sér,“ segir Hrafnhild. Hún þakkar líka þjálfara sínum, Jóni Oddssyni. „Ég er með ótrúlega góðan þjálfara og er heppin að hann á frábæra konu en þau hafa reynst mér ótrúlega vel,“ segir Hrafnhild. Hún viðurkennir samt að það hafi verið smá svekkjandi að hafa ekki náð lágmarkinu inn á EM þrátt fyrir frábært hlaup um síðustu helgi. „Þetta var gleðihelgi en smá svona „ah, bara eitt sekúndubrot.“,“ segir Hrafnhild hlæjandi en bætir svo við að lokum: „Þetta er bara einn stoppustaður á leiðinni.“
Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Fagna tíunda Stórmóti ÍR í nýju Laugardalshöllinni með nýju meti Yfir 800 keppendur hafa skráð sig til leiks á nítjánda Stórmóti ÍR í frjálsíþróttum sem fer fram um helgina en þetta er nýtt þáttökumet. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍR-ingum. 30. janúar 2015 14:24 Hrafnhild Eir náði öðrum besta tíma íslenskrar konu frá upphafi Hrafnhild Eir R Hermóðsdóttir, spretthlaupari úr ÍR, hefur byrjað innanhússtímabilið vel og bætti sig verulega í 60 metra hlaupi á Stórmóti ÍR í gær. Þetta kemur fram á heimasíðu FRÍ. 1. febrúar 2015 11:53 Mest lesið Fræg íþróttafréttakona brann inni með þremur börnum sínum Sport Ung hnefaleikakona í dái eftir rothögg Sport Fær meira en fimm milljarða í árslaun Sport Sturla opnar sig: „Mér finnst ég hafa fundið sjálfan mig aftur“ Sport „Mjög dapur í langan tíma“ Fótbolti Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH Íslenski boltinn Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Enski boltinn Missir af Londonmaraþoninu eftir óhapp á hlaupabretti Sport Hákon hjólaði í Greenwood: „Stjórnlaust, árásargjarnt og ofbeldisfullt“ Fótbolti Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Fleiri fréttir Fær meira en fimm milljarða í árslaun „Mjög dapur í langan tíma“ Sturla opnar sig: „Mér finnst ég hafa fundið sjálfan mig aftur“ Fræg íþróttafréttakona brann inni með þremur börnum sínum Missir af Londonmaraþoninu eftir óhapp á hlaupabretti Yngsti sigurvegarinn í sögu HM Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum Ung hnefaleikakona í dái eftir rothögg Sjötti leikmaður Arsenal missir af landsleikjum í mars Kolbeinn heillaði alla hjá félaginu sem keypti hann strax Gleðifréttir fyrir FH-konur sem halda Andreu Rán Zinedine Zidane tekur við franska landsliðinu í sumar Hálfíslenskur norskur þingmaður hneykslaður á verði á HM-treyjunni Meistaraskjöldurinn kom óvænt í leitirnar Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH Besta sætið: Óvinur Heimis enn á kreiki Nýr aðalþjálfari Ísaks fær tvo sénsa til að sanna sig Griezmann að flytja til Flórída Yfir 300 beinar útsendingar í apríl Chiesa ekki í standi til að spila í umspilinu Segir óafsakanlegt að Kristófer spili ekki með landsliðinu Settur á bekkinn fyrir að mæta seint en lagði síðan upp sigurmarkið Ekið yfir unga stúlku á golfbíl á PGA-móti Haaland fær frí frá landsliðinu „Arteta skuldar Kepa ekki neitt heldur stuðningsmönnum Arsenal“ Bikarinn brotnaði við lyftingu Messan: Vill að Solskjær taki við Spurs Benítez kippti Sverri út af eftir óheppilegt sjálfsmark Tæknivillan tekin til baka og Doncic sleppur við bann Hjörtur kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Daníel Leó Sjá meira
Fagna tíunda Stórmóti ÍR í nýju Laugardalshöllinni með nýju meti Yfir 800 keppendur hafa skráð sig til leiks á nítjánda Stórmóti ÍR í frjálsíþróttum sem fer fram um helgina en þetta er nýtt þáttökumet. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍR-ingum. 30. janúar 2015 14:24
Hrafnhild Eir náði öðrum besta tíma íslenskrar konu frá upphafi Hrafnhild Eir R Hermóðsdóttir, spretthlaupari úr ÍR, hefur byrjað innanhússtímabilið vel og bætti sig verulega í 60 metra hlaupi á Stórmóti ÍR í gær. Þetta kemur fram á heimasíðu FRÍ. 1. febrúar 2015 11:53