Framkvæmdastjóri OECD beitir sér gegn útgöngu Breta úr ESB Sæunn Gísladóttir skrifar 30. mars 2016 11:00 Gurria segir að allir hafi hagnast af aðild að sambandinu. Fréttablaðið/Ernir
Angel Gurria, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, segir að Bretland ætti að vera áfram í Evrópusambandinu. Hann varar við því að óvissa um framtíð sambandsins hafi neikvæð áhrif á bæði hagkerfin í aðdraganda kosninga um veru Breta í ESB. OECD mun beita sér markvisst fyrir því að Bretar verði áfram í Evrópusambandinu þar sem það sé Bretum fyrir bestu, sagði Gurria í viðtali við Bloomberg Surveillance. „Sambandið hefur gengið vel fram að þessu, allir hafa notið góðs af því, það er engin ástæða til að halda því fram að utan sambandsins muni Bretum ganga betur, þeim mun ekki gera það. Bretland er miklu sterkara sem hluti af Evrópu og Evrópa er mun sterkari vegna þess að Bretland er í henni, fjármálamarkaðir landsins og sterkt efnahagskerfi þess,“ sagði Gurria í viðtalinu. Gurria varaði við því að ef af útgöngu yrði kæmi margt til með að breytast og mikil óvissa myndi ríkja. Kosið verður um veru Breta í ESB þann 23. júní næstkomandi. David Cameron forsætisráðherra hefur beitt sér fyrir því að Bretar verði áfram í sambandinu, en Boris Johnson og ýmis fyrirtæki sjá hag sinn í að yfirgefa það. Í gær varaði Englandsbanki við því að pundið gæti komið til með að veikjast í aðdraganda kosninganna.
Brexit Mest lesið Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Atvinnulíf Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Viðskipti innlent Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Atvinnulíf „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Viðskipti innlent Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Sjá meira