Telja að draga muni úr fjölgun ferðamanna á næsta ári sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 20. september 2016 14:57 vísir/ernir
Greiningadeild Arion banka telur að strax á næsta ári fari að draga úr fjölgun erlendra ferðamanna og að aukningin árið 2019 verði komin niður í tíu prósent frá fyrra ári. Hún er talin verða 39 prósent í ár. Þetta kemur fram í nýrri ferðaþjónustuúttekt bankans sem kynnt var í morgun. Þar spáir bankinn því að vöxtur í komum ferðamanna slái öll met í ár en að hægja taki síðan á vextinum. Spáin hljóðar upp á 2,2 milljónir ferðamanna á næsta ári og að fjöldinn fari upp í 2,5 milljónir árið 2019. Þá segir að í fyrra hafi Bandaríkjamenn og Bretar verið fjölmennastir allra ferðamanna hingað til lands, eða 38 prósent. Það sem af er þessu ári hefur bandarískum ferðamönnum fjölgað mest en einnig hefur ferðamönnum frá Kanda, Póllandi og Bretlandi fjölgað mikið. Brexit, eða útganga Breta úr Evrópusambandinu, virðist enn sem komið er ekki hafa haft sýnileg áhrif þar sem breskum ferðamönnum fjölgaði um 16 prósent eftir Brexit kosninguna í júní. Flugframboð bendir ekki til þess að fækkun breskra ferðamanna sé í kortunum á næstunni. Rússneskum ferðamönnum fækkaði hins vegar um 39 prósent í fyrra frá árinu áður og Norðmönnum um fjögur prósent. Ástæðan er lakara efnahagsástand í olíuútflutningsríkjum, samkvæmt úttekt bankans.
Brexit Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Fleiri fréttir Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Sjá meira