Kristján og Svíarnir úr leik eftir tap á móti Frakklandi Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. janúar 2017 19:31 Kristján Andrésson gerði vel á sínu fyrsta stórmóti. vísir/epa
Kristján Andrésson og lærisveinar hans í sænska landsliðinu í handbolta eru úr leik á HM 2017 eftir tap á móti gestgjöfum Frakklands, 33-30, í átta liða úrslitum keppninnar í kvöld. Svíar voru marki yfir í hálfleik, 16-15, en seinni hálfleikurinn var sveiflukenndur framan af þar sem liðin skiptust á að hafa forystu. Svíarnir voru 26-25 yfir þegar tólf mínútur voru eftir en Frakkarnir settu þá í gírinn, skoruðu fjögur mörk í röð og komust í 29-26. Sænska liðið minnkaði muninn í 30-28 þegar þrjár mínútur voru eftir en franska liðið var sterkara á lokasprettinum. Kentin Mahe var markahæstur Frakkanna með níu mörk úr tíu skotum en hann fór sjö sinnum á vítalínuna og skoraði í öll skiptin. Nedim Remili kom virkilega sterkur inn í hægri skyttuna í seinni hálfleik og skoraði sex mörk úr átta skotum en Ludovic Fabregas skoraði fimm mörk. Hjá Svíum var Jim Gottfridson markahæstur með sjö mörk úr níu skotum en Lukas Nilsson skoraði fimm mörk. Mikael Appelgren varði ellefu skot og var með 37 prósent hlutfallsmarkvörslu. Frakkarnir halda áfram og mæta Slóveníu eða Katar í undanúrslitum en Svíarnir eru úr leik á fyrsta stórmóti liðsins undir stjórn Kristjáns Andréssonar. Lærisveinar Kristjáns spiluðu mjög vel á HM og unnu alla nema einn leik í riðlakeppninni. Liðið skoraði mest allra liða í riðlakeppninni en komst ekki í gegnum gestgjafana í Lille í kvöld. Þar með eru allir Íslendingarnir úr leik á HM. Íslenska landsliðið kvaddi í 16 liða úrslitum líkt og Guðmundur Guðmundsson og Dagur Sigurðsson gerðu með sín lið.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira