Fangageymslur lögreglu fullar eftir nóttina Kjartan Kjartansson skrifar 18. júní 2017 08:15 Fullt hús var í fangageymslu lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu. Vísir/GVA
Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru fangageymslur hennar á Hverfisgötu og í Hafnarfirði fullar. Nokkuð var um fíkniefnamál í Laugardalnum þar sem tónlistarhátíðin Secret Solstice er haldin. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að átján manns hafi gist fangageymslurnar í Hafnarfirði og á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Maðurinn sem braust inn í bílaleigu á Höfða í gærkvöldi var handtekinn við annað brot síðar um kvöldið í Breiðholti. Hann hafði brotið rúðu hjá bílaleigunni, farið inn um glugga og stolið bíllyklum. Innbrotþjófurinn skarst hins vegar á höndum við innbrotið og var töluvert blóð á vettvangi. Þegar hann var handtekinn fundust bíllyklarnir í fórum hans. Hann fékk að gista fangageymslu í nótt.Sex manns teknir með fíkniefni á 40 mínútna tímabiliÍ Laugardalnum var nokkuð um fíkniefnabrot. Þannig hafði lögreglan afskipti af manni á tjaldstæðinu þar vegna vörslu fíkniefna og 16 ára gamalli stúlku, sömuleiðis vegna fíkniefna. Á fjörutíu mínútna tímabili á milli 21:21 og 22:09 höfðu lögreglumenn afskipti af sex einstaklingum til viðbótar í Laugardalnum sem voru með fíkniefni í fórum sínum. Ekki kemur beint fram í dagbók lögreglunnar að málin tengist Secret Solstice.
Mest lesið „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Innlent Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent Fleiri fréttir „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Aðstoðuðu tvö skip í vanda á Breiðafirði Gjöld fyrir frístund rokið upp Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Þetta er stefna flokkanna í Reykjavík í skipulags- og húsnæðismálum Skjálfti að stærð 3,6 á Mosfellsheiði Sjá meira