Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Birgir Olgeirsson skrifar 13. maí 2026 16:11 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Sjálfstæðisflokkur eigi sér sögu af stórfelldri eignasölu og kjósendur þurfi að huga að því aðdraganda borgarstjórnarkosninga. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, segir það ekki standa til af hálfu flokksins að selja Orkuveituna og segir þetta til marks um örvæntingu innan Samfylkingarinnar. Vísir Það má heldur betur segja að hiti sé að færast í borgarstjórnarkosningarnar en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, sakar Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar, um að dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn sem varðar sölu á orkuinnviðum.
Kristrún mætti í viðtal í hlaðvarp Ólafs Arnarsonar fjölmiðlamanns, en DV hefur birt frétt upp úr spjalli þeirra undir fyrirsögninni Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík. Í viðtalinu segir Kristrún að Sjálfstæðisflokkurinn hafi í gegnum tíðina átt langa sögu af stórfelldri eignasölu. Samfylkingin hafi þurft að taka við brotnu búi í Reykjanesbæ eftir efnahagshrunið. „Þar sem var búið að selja nær allar eignir, orku- og veitufyrirtæki samfélagsins. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var síðast við völd hérna í Reykjavík, þá seldur þeir Landsvirkjun,“ segir Kristrún og bætir við: „Og þeir reyndu að selja Orkuveituna, Ólafur. Og ég segi bara, Sjálfstæðisflokkurinn vill selja orkuna okkar. Við sáum nú bara síðasta útspil af hálfu formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins í landsmálunum þar sem þau töluðu, ég meina, það er ekki einu sinni hægt að búa þetta til en þetta er til á blaði, Ólafur. Þau töluðu um að selja RARIK og Landsnet. Þetta eru fyrirtæki í fákeppni ef ekki í rauninni beinlínis einokunarstöðu.“ Ljúft og skylt að svara Hildur Björnsdóttir gefur ekki mikið fyrir þessi ummæli Kristrúnar. „Mér er það bæði ljúft og skylt að svara dylgjum forsætisráðherra: Það er hvorki stefna Sjálfstæðisflokksins, né mín, að selja Orkuveituna. Það hefur legið skýrt fyrir í okkar málefnaskrá frá upphafi. Næsta mál,“ segir Hildur Björnsdóttir á Facebook en hún vill meina að þessi ummæli Kristrúnar séu til marks um sögulegar sættir innan Samfylkingarinnar. „Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur nú lagst á sveif með aukaleikaranum, Degi B. Eggertssyni, við að dreifa ósannindum um stefnu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Örvæntingin er ótrúlegur mannasættir.“ Hvatti til að strikað yrði yfir Dag Þar vísar Hildur væntanlega til þess þegar Kristrún hvatti til þess í skilaboðum til stuðningsmanns að strikað yrði yfir nafn Dags B. í síðustu þingkosningum. Þar kallaði hún Dag aukaleikara innan Samfylkingarinnar sem vakti talsverða eftirtekt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að mælast með talsvert forskot á Samfylkinguna í könnunum og má ljóst vera að það verður mikið kapp á milli flokkanna nú á lokadögum kosningabaráttunnar.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Orkumál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira