Frumraun Hilmars Arnar á heimsmeistaramóti er á Ólympíuleikvanginum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2017 15:30 Hilmar Örn Jónsson. Mynd/Virginia T&F/CC
Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson úr FH keppir á sínu fyrsta Heimsmeistaramóti í kvöld þegar hann tekur þátt í undankeppni í sleggjukasti á HM í London. Hilmar Örn keppir í fyrri kasthópnum og hefst keppnin klukkan 18:20 að íslenskum tíma á Ólympíuleikvanginum í London. Hilmar Örn er sá sjötti í kaströðinni. Hilmar Örn er annar Íslendingurinn til að keppa á heimsmeistaramótinu í London en Ásdís Hjálmsdóttir varð í ellefta sæti í spjótkasti í gær. Menn þurfa að kasta 75,50 metra eða lengra til þess að komast beint í úrslit en tólf keppendur munu keppa til úrslita í greininni. 32 keppendur eru skráðir til leiks, 16 í hvorum kasthópi. Allir hinir sleggjukastararnir hafa kastað lengra en Hilmar Örn á þessu ári. Hilmar Örn hefur staðið sig mjög vel í keppnum sumarsins. Hann bætti eigið Íslandsmet í flokki 20 til 22 ára 8. júní síðastliðinn er hann kastaði 72,38 metra á Bandaríska háskólamótinu í Eugene, Oregon. Hilmar hafnaði í sjöunda sæti á Evrópumeistaramóti 20 til 22 ára í júlí þar sem hann kastaði 69,96 metra og vantaði aðeins 65 sentímetra upp á að komast í verðlaunasæti. Hilmar Örn er annar Íslendingurinn sem keppir í sleggjukasti á HM í frjálsum en Bergur Ingi Pétursson komst ekki í úrslit á HM í Berlín 2009. Hann kastaði þá lengst 68,62 metra og endaði í 31. sæti.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Fleiri fréttir The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppnum Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Féll í yfirlið í miðjum leik Eggert Þór komst í 8-liða úrslit Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram „Klappað fyrir manni þegar maður mætti“ Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Tékki til Njarðvíkur „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sjá meira