Leggið nafnið á minnið: Bætti 20 ára gamalt heimsmet á fyrsta mótinu sem atvinnumaður Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. janúar 2018 13:30 Christian Coleman er nafn sem þarf að leggja á minnið. vísir/getty
Eitt elsta heimsmet frjálsíþróttaheimsins var slegið um helgina þegar að Bandaríkjamaðurinn Christian Coleman bætti heimsmetið í 60 metra hlaupi á móti í Clemson í Karólínuríki. Coleman kom í mark á 6,37 sekúndum og bætti heimsmet samlanda síns Maurice Green um tvo hundruðustu úr sekúndu. Green hljóp fyrst á 6,39 sekúndum árið 1998 og jafnaði eigið met þremur árum síðar. Coleman er 21 árs og sló í gegn á síðasta ári þegar að hann vann silfur í 100 metra hlaupi á HM í London en þar kom hann í mark á undan sjálfum Usain Bolt. Hann er einnig ríkjandi háskólameistari. „Frábær byrjun á mínum ferli,“ skrifaði Coleman á Twitter en það ótrúlega í þessu er að þetta var fyrsta mót Bandaríkjamannsins unga sem atvinnumaður en áður var hann að keppa sem áhugamaður enda enn þá í skóla. Hann bætti því 20 ára gamalt heimsmet á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður í frjálsíþróttum en hann hafði áður hlaupið 60 metrana hraðast á 6,45 sekúndum. Christian Coleman er nafn sem áhugamenn um íþróttir þurfa að leggja á minnið því þessi naggur er líklega næsta stórstjarnan í bandarískum frjálsþróttum.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Féll í yfirlið í miðjum leik Eggert Þór komst í 8-liða úrslit Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram „Klappað fyrir manni þegar maður mætti“ Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Tékki til Njarðvíkur „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Draumurinn rætist hjá Bergrós í dag á rosalegum fyrsta keppnisdegi Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Sjá meira