Tveimur mönnum bjargað áður en trilla sökk í Skagafirði Kjartan Kjartansson skrifar 19. maí 2018 22:12 Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út. Myndin er úr safni. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Þyrla Landhelgisgæslunnar og öll tiltæki björgunarskip voru kölluð til vegna trillu sem var í vanda stödd nærri Reykjadisk í Skagafirði nú í kvöld. Tveimur mönnum var bjargað úr sjónum en bátnum sökk. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst útkallið kl. 20:39 í kvöld. Báturinn hafi fengið á sig ólag, snúist á hliðina og sokkið á endanum. Mennirnir eru sagðir við góða heilsu. Ágætt veður er sagt vera á svæðinu en nokkur alda. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að TF-GNÁ hafi verið kölluð út þegar í stað þegar útkallið barst. Farþegabáturinn Súlan var sömuleiðis sendur á staðinn frá Hofsósi ásamt björgunarsveitarmönnum. Mönnunum tveimur var svo bjargað um borð í björgunarbát heilum á húfi um klukkan hálf tíu. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að um þrjátíu björgunarsveitarmenn hafi farið af stað í útkallið, þar á meðal á björgunarskipum frá Skagaströnd og Siglufirði. Það hafi verið björgunarbátur frá Sauðárkróki sem hafi bjargað mönnunum tveimur sem voru þá komnir í sjóinn.
Skagaströnd Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Fleiri fréttir Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Sjá meira