Leiguverð í Reykjavík hærra en í öðrum höfuðborgum Norðurlanda Atli Ísleifsson skrifar 25. september 2018 10:01 Tveggja herbergja íbúð miðsvæðis í Reykjavík leigist á um 190 þúsund krónur á mánuði að meðaltali. vísir/vilhelm
Leiguverð í Reykjavík er hærra en í öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum. Þannig leigist tveggja herbergja íbúð miðsvæðis í Reykjavík á um 190 þúsund krónur á mánuði að meðaltali. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu frá Leigumarkaðsdeild Íbúðalánasjóðs um íbúðar- og leiguverð í höfuðborgum Norðurlandanna. Þar segir að aftur á móti sé húsnæðisverð í Reykjavík lægra en í flestum höfuðborgum Norðurlandanna. „Í skýrslunni kemur fram að íbúðaverð í Reykjavík sé lágt í hlutfalli við tekjur miðað við höfuðborgir annarra landa. Hlutfallslega lágt húsnæðisverð á móti háu leiguverði gerir það að verkum að hagstæðara er fyrir fólk að kaupa. Á móti þessu kemur að hátt leiguverð gerir leigjendum erfiðara fyrir að safna sér upp í þá útborgun sem þarf fyrir íbúð. Hvergi jafn hátt hlutfall ungs fólks í foreldrahúsum Hátt leiguverð en hlutfallslega lágt húsnæðisverð kann að vera skýringin á háu hlutfalli ungs fólks í foreldrahúsum, en hvergi á Norðurlöndunum er hlutfallið jafn hátt og hér á landi. Um 14% fólks á aldrinum 25-34 ára hér á landi býr í foreldrahúsum á meðan hlutfallið er innan við 6% víðast hvar annars staðar á Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningu frá sjóðnum.Lesa má skýrsluna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs.
Húsnæðismál Norðurlönd Mest lesið Íbúðahótel í Reykjavík hætti rekstri vegna nýrra laga Viðskipti innlent Íslendingar með trillukarlaheilkenni Viðskipti innlent Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Neytendur Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Atvinnulíf Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Neytendur Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Atvinnulíf Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Viðskipti innlent Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun Viðskipti innlent Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslendingar með trillukarlaheilkenni Íbúðahótel í Reykjavík hætti rekstri vegna nýrra laga Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Sjá meira