600 milljóna króna gjaldþrot hjá barnafataverslun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. nóvember 2018 11:24 Kandi ehf. var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2015. Vísir/Vilhelm
Engar eignir fundust í þrotabúi Kanda ehf. sem rak barnafataverslunina Polarn O. Pyret í Smáralind fyrir um áratug. Kandi ehf. var úrskurðað gjaldþrota árið 2015 en skiptum í búið lauk á dögunum. Námu kröfur í búið 586 milljónum króna að því er fram kemur í Lögbirtingablaðinu. Stærsti kröfuhafinn í þrotabúið var Drómi ehf. sem höfðaði mál á hendur Kanda ehf. vegna 110 milljóna króna láns sem rekstraraðilarnir tóku hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis árið 2007. Var Kanda gert að greiða Dróma 320 milljónir króna ásamt dráttarvöxtum. Drómi varð sem kunnugt er til með ákvörðun Fjármálaeftirlitsins árið 2009, sérstakt hlutafélag í eigu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, sem tók við kröfuréttindum í eigu sparisjóðsins. Polarn O. Pyret var stofnað í Svíþjóð árið 1976 og hefur verið verslun með nafninu á Íslandi í rúmlega þrjátíu ár. Verslun Polarn O. Pyret var um tíma rekin bæði í Kringlunni og Smáralind. Í dag er hún aðeins rekin í Kringlunni, af sömu aðilum og héldu utan um Kanda en á annarri kennitölu.
Gjaldþrot Mest lesið Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent Gengi Alvotech hrynur Viðskipti innlent „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Sjá meira