Patrekur byrjaði HM á sigri og Rússar redduðu stigi í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2019 19:17 Patrekur Jóhannesson. Vísir/Getty
Patrekur Jóhannesson stýrði austurríska landsliðinu til sigurs í fyrsta leik á HM í handbolta en strákarnir hans unnu þá sjö marka sigur á Sádí Arabíu. Þetta var annar leikurinn í C-riðli en Danir unnu 23 marka sigur á Síle í fyrsta leik riðilsins í gær. Á sama tíma gerðu Serbar og Rússar 30-30 jafntefli í æsispenanndi leik. Rússinn Timur Dibirov skoraði tvö síðustu mörkin í leiknum og alls tólf mörk úr aðeins þrettán skotum. Serbar voru 23-19 yfir eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en misstu frá sér sigurinn. Austurríkismenn voru með gott tak á leiknum frá fyrstu mínútu, komust í 3-1, 11-6 og voru síðan með níu marka forystu í hálfleik, 15-9. Sádar náðu að minnka muninn aftur niður í þrjú mörk á upphafskafla seinni hálfleiks en þá gaf austurríska liðið aftur í og landaði öruggum sigri. Mykola Bilyk var markahæstur hjá Austurríki með 7 mörk úr 9 skotum en Raul Santos skoraði fimm mörk. Kristian Pilipovic varði 12 skot í markinu þaf af tvö víti. Argentínumenn náðu að koma á óvart og gera jafntefli við Ungverja í D-riðli. Ungverjar höfðu verið með þriggja marka forystu eftir fyrri hálfleikinn en Argentínumenn náðu að koma til baka og tryggja sér 25-25 jafntefli.
HM 2019 í Frakklandi Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Opinberuðu sambandið með sigurkossi Formúla 1 Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Sjá meira