Tæklaði lukkudýr Patriots upp á sjúkrahús | Myndband Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. janúar 2019 13:00 Pat Patriots er hér með Tom Brady. vísir/getty
Flytja þurfti drenginn sem var að leika lukkudýr New England Patriots, Pat Patriots, í gær á sjúkrahús eftir að brandari leikmanns NY Jets gekk aðeins of langt. Nú eru margir bestu leikmenn NFL-deildarinnar staddir í Orlando til þess að taka þátt í hinum árlega Pro Bowl-leik. Í tengslum við leikinn taka leikmenn þátt í alls konar keppnum og lukkudýrin eru með í för. Jamal Adams, varnarmaður NY Jets, ákvað að sprella aðeins fyrir fólkið sem var að fylgjast með fjörinu. Hann ákvað að tækla lukkudýrið sem allir voru að baula á enda Patriots ekki vinsælasta félagið. „Það voru allir að baula og ég ákvað því að sprella aðeins og tækla hann. Ég fór ekkert fast í hann og ég ætlaði aldrei að meiða hann. Ég var bara að leika mér,“ sagði Adams en lukkudýrið meiddi sig talsvert og fór upp á sjúkrahús.This one is for every Patriots hater out there! I got y’all! pic.twitter.com/q0WAbDfrpL — Jamal Adams (@TheAdamsEra) January 24, 2019 Ekki hafa borist neinar fréttir af meiðslunum. Aðeins er vitað að drengurinn í búningnum fór á spítala. Adams mun væntanlega nota fyrsta tækifæri til þess að biðja hann afsökunar.
NFL Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Lætur hnefana tala HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Þykja Alpine liðið vera of dýrt Dagskráin í dag: Landar Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Sjá meira