Mætti ekki í viðtal eftir útreið gegn FH: „Þetta er óþolandi“ Anton Ingi Leifsson skrifar 1. nóvember 2019 08:30
Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, gaf ekki kost á sér í viðtöl eftir útreiðina gegn FH í Olís-deild karla á mánudagskvöldið. ÍR-ingar voru ellefu mörkum undir í hálfleik en náði aðeins að minnka forskotið í síðari hálfleik. Sigur FH þó aldrei í hættu. Seinni bylgjan ræddi um framgöngu Bjarna í þætti sínum í gærkvöldi en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bjarni lætur bíða eftir sér eða mætir ekki í viðtal. „Það er í raun og veru ekki boðlegt að vera fjalla um þetta en við verðum að gera það. Þetta er óþolandi. Handboltinn er í varnarbaráttu og höfum verið í ákveðinn tíma. Við þurfum á öllu okkar að halda,“ sagði einn spekingurinn, Arnar Pétursson. „Hér er til dæmis verið að halda úti þætti. Hér er verið að auka umfjöllun og peppa þetta upp. Við megum ekkert við því að þjálfarar, leikmenn eða aðrir séu að skemma það góða starf sem verið er að vinna.“ „Bjarni hefur verið að gera góða hluti. Nú er smá mótlæti, tveir leikir sem tapast illa en hann þarf að vera maður með meiru og mæta í viðtölin og skýra sína hlið. Hann er sjálfur að gefa út bók og ég er ekki að sjá að þegar verið er að gefa út hans bækur, að hann láti ekki sjá sig þar.“ Allt innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Olís-deild karla Seinni bylgjan Mest lesið Potter undir mikilli pressu Enski boltinn „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Handbolti Langfljótastur í fimmtíu mörkin Fótbolti „Hugur fylgdi máli í okkar aðgerðum“ Sport Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Erfið endurkoma hjá De Bruyne Fótbolti Tvenna Rashford tryggði þrjú stig Fótbolti Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Handbolti Fékk viljandi rautt og gæti misst af úrslitaleiknum Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Handbolti Fleiri fréttir „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Sjá meira