Fólk frá ákveðnum ríkjum Bandaríkjanna sæti tveggja vikna sóttkví Atli Ísleifsson skrifar 25. júní 2020 10:06 New York hefur farið illa út úr faraldri kórónuveirunnar. Getty
Yfirvöld í New York, New Jersey og Connecticut hafa ákveðið að fólk sem kemur frá ríkjum þar sem kórónuveiran er enn í miklum vexti skuli sæta tveggja vikna sóttkví við komuna til ríkjanna. Phil Murphy, ríkisstjóri New Jersey, sagði íbúa ríkjanna þriggja hafa „farið til heljar og til baka“ vegna kórónuveirunnar. Þeir vildu eftir fremsta megni forðast aðra bylgju faraldurs í ríkjunum. Nokkur ríki sunnan og vestan til í Bandaríkjunum hafa undanfarið greint frá miklum vexti kórónuveirunnar og talað um metfjölda smita í því samhengi. Minnst 2,3 milljónir Bandaríkjamanna hafa greinst með veiruna samkvæmt opinberum tölum og þá hefur veiran dregið fleiri en 121 þúsund manns til dauða þar vestra. Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, sagði á blaðamannafundi að umrædd ríki væru Alabama, Arkansas, Arizona, Flórída, Norður-Karólína, Suður-Karólína, Texas og Utah. Fólk sem er að koma frá þessum ríkjum þurfi að sæta sóttkví við komuna til New York. Virði fólk ekki skyldur um sóttkví verði það sektað. Sektin hljóðar upp á þúsund dali en allt að fimm þúsund dali fyrir ítrekuð brot.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Sjá meira