Seinni bylgjan: Ég hef ekki séð verra brot í langan tíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2020 12:30 Daði Jónsson brýtur hér á Andra Má Rúnarssyni. Mynd/S2 Sport
Seinni bylgjan skoðaði sérstaklega rautt spjald sem KA-maðurinn Daði Jónsson hlaut í leik KA á móti Stjörnunni í Ásgarði. „Þetta er eldrautt spjald, get ég sagt ykkur. Þetta var mjög gróft,“ sagði Henry Birgir Gunnarsson, umsjónarmaður Seinni bylgjunnar áður en brotið var sýnt. Daði Jónsson togaði þá niður hinn bráðefnilega Andra Már Rúnarsson sem slapp betur frá þessu en á horfðist. Brotið fékk mikil viðbrögð frá sérfræðingunum. „Daði Jónsson var aðeins of harður á því þarna,“ sagði Henry. „Ég hef bara ekki séð verra brot í langan tíma,“ sagði Logi Geirsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar. „Ég vissi ekki að við værum að fara sýna þetta brot því ég vildi ekki fá eldrautt, eldrautt. Þetta er ELDRAUTT,“ sagði Logi. „Þetta er bann er það ekki?,“ spurði Logi. „Það kemur í ljós. Það fá allir rautt og blá en vegir aganefndar Handknattleikssambandsins eru reyndar órannsakanlegir. Það verður því bara að koma í ljós,“ sagði Henry Birgir. „Í dag fá menn rautt og blátt en í gamla daga fékk maður bara bleikt og blátt,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson í gríni. Seinni bylgjan skoðaði líka annað brot sem einhverjir vildu meina að væri líka rautt spjald. Tandri Már Konráðsson virðist þá kýla aðeins frá sér. Það má sjá umfjöllun Seinni bylgjunnar um þessi tvö brot hér fyrir neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Þetta er eldrautt, eldrautt spjald
Olís-deild karla Seinni bylgjan Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Enski boltinn Fleiri fréttir Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða 75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Andrea snýr heim í Olís-deildina Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“