Kynferðisbrotamáli Jóns Baldvins á Spáni enn vísað frá dómi Jakob Bjarnar skrifar 28. janúar 2021 10:37 Jón Baldvin Hannibalsson mætti í Ríkisútvarpið í byrjun árs 2019 til að svara ásökunum kvenna um að hann hafi beitt þær kynferðisofbeldi. Ásakanirnar eru orðnar býsna margar. vísir/vilhelm Kynferðisbrotamáli á hendur Jóni Baldvini Hannibalssyni hefur enn verið vísað frá dómi en ákæruvaldinu mistókst að sýna fram á að umrædd háttsemi væri refsiverð samkvæmt spænskum lögum.
Jóni Baldvini var gefið að sök að hafa „laugardaginn 16. júní 2018 á heimili sínu á Granada á Spáni, strokið utanklæða upp og niður eftir rassi Carmen Jóhannsdóttur sem var gestkomandi á heimili Jóns,“ eins og segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem gefin var út nú í morgun. Ríkissjóði er gert að greiða Vilhjálmi Hans Vilhjálmssyni lögmanni Jóns Baldvins tæplega milljón krónur í málsvarnarlaun. Málið velkist um í dómskerfinu Talsvert hefur verið um málið fjallað en því er nú vísað frá öðru sinni. Héraðsdómur hafði áður vísað málinu frá en þá var því vísað til Landsréttar sem sendi það aftur í Héraðsdóm. Ástæðan var sú að lengri tími en fjórar vikur liðu frá því að munnlegum málflutningi um frávísunarkröfuna lauk og þar til úrskurður var kveðinn upp. Málið hefur verið mjög til umfjöllunar í fjölmiðlum. Carmen steig fram og greindi frá reynslu sinni af heimsókn til þeirra hjóna Jóns Baldvins og Bryndísar Schram. Jón Baldvin svaraði þessum ásökunum af hörku og hefur haldið því fram að atvikið hafi verið sviðsett. Carmen krafði Jón Baldvin um eina milljón króna í miskabætur. Síðbúinn sannleikur Þessi grein eftir mig birtist í BB á Ísafirði, mánudaginn 25.jan. Innst inni er ég...Posted by Bryndis Schram on Miðvikudagur, 27. janúar 2021 Bryndís ritaði nýverið grein sem hún birti fyrst í vestfirska fréttaritinu BB en endurbirti þá greinina á Facebooksíðu sinni nú í vikunni. Þar fer hún yfir málið eins og það horfir við sér. Bryndís fjallar þar um ásakanir sem Jón Baldvin og þau hjón hafi mátt sitja undir. „Ég held, að þetta fár, þetta skyndilega og ímyndaða hatur, sem um þessar mundir beinist að okkur í samfélagsmiðlum, sé sprottið af því, sem heitir á þýsku „Schadenfreude“ – það að gleðjast yfir óförum annarra. Þannig fær fólk útrás fyrir sína eigin gremju, sitt niðurbælda hatur á öllum og öllu. Það hefur nautn af því að rífa niður mannorð náungans og baða sig í eigin illsku. Skaðagleði heitir það á íslensku,“ segir Bryndís meðal annars í pistli sínum. Vilhjálmur lögmaður krafðist frávísunar fyrir hönd Jóns Baldvins en ákæruvaldið fór fram á að þeirri kröfu væri hafnað og að málið fengi efnislega meðferð. Ákæruvaldið byggir mál sitt á því að háttsemi sú sem Jóni er gefið að sök sé refsiverð samkvæmt spænskum lögum. Ruglingsleg Google-þýðing lögð fram Í niðurstöðu er greint frá því að fyrir liggi tölvupóstsamskipti ákæruvaldsins og aðila hjá Eurojust um það efni. „Ekki þykir ástæða til að lýsa þessum samskiptum ítarlega en þar kemur m.a. fram að sú sem fyrir svörum verður viti ekki hvort hún skilur vandamálið rétt,“ segir í úrskurðinum. „Ákæruvaldið óskaði eftir því að fá send dæmi úr spænskri dómaframkvæmd þar sem svipuð málsatvikalýsing og í máli þessu teldist brot gegn ofangreindum 1. t. 181 gr. spænskra hegningarlaga. Eftir það voru send gögn sem byggðust að því er virðist á Google-þýðingu þar sem seigir að torvelt kunni að vera að þýða úr spænsku en farið hafi verið yfir Google-þýðinguna í fljótheitum, eins og segir. Í kjölfarið fylgir það sem sagt er vera skilgreining á kynferðislegri áreitni. Vegna beiðni ákæruvaldsins um dóma þar sem málsatvik væru svipuð og í máli þessu fylgir stutt endursögn málsatvika dóms þar sem málsatvik eru ekki sambærileg þeim sem lýst er í ákæru.“ Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara þykir ekki ástæða til að rekja þessi samskipti frekar. Tölvupóstsamskiptin sem fylgja eru svo ónákvæm og óljós að þau teljast ófullnægjandi. Því verði að vísa málinu frá.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mál Jóns Baldvins Hannibalssonar MeToo Tengdar fréttir Segir ákveðinn sigur að Jón Baldvin hafi verið ákærður Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart konu sem var gestkomandi á heimili hans á Spáni í júní 2018. Konan segist fegin að málið sé komið til ákæruvaldsins. 7. september 2020 14:50 Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Fleiri fréttir „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Sjá meira
Segir ákveðinn sigur að Jón Baldvin hafi verið ákærður Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart konu sem var gestkomandi á heimili hans á Spáni í júní 2018. Konan segist fegin að málið sé komið til ákæruvaldsins. 7. september 2020 14:50