Ummælum Arnars Daða vísað til aganefndar Sindri Sverrisson skrifar 7. apríl 2022 14:56 Arnar Daði Arnarsson lét dómarana heyra það eftir dýrkeypt eins marks tap Gróttu gegn ÍBV í gærkvöld. vísir/Elín Framkvæmdastjóri HSÍ hefur vísað ummælum Arnars Daða Arnarssonar, þjálfara Gróttu, til aganefndar þar sem hann telur þau óíþróttamannsleg og skaða ímynd handknattleiksíþróttarinnar.
Arnar Daði var ómyrkur í máli eftir eins marks tap Gróttu gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í gærkvöld, í næstsíðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta. Jafntefli hefði dugað Gróttu til að geta spilað úrslitaleik við KA í lokaumferðinni um sæti í úrslitakeppninni. ÍBV vann leikinn hins vegar með marki þegar tvær sekúndur voru eftir en Arnar Daði var sérlega óhress með dómgæsluna á lokakafla leiksins. Ekki síst þá staðreynd að dómararnir skyldu ákveða að stöðva leiktímann eftir að Grótta fékk vítakast þegar um tíu sekúndur voru eftir, í stað þess að leiktíminn rynni út og að vítakastið yrði það síðasta sem gerðist í leiknum. Ummælin sem Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, hefur vísað til aganefndar birtust á mbl.is eftir leik og voru svohljóðandi: „Ég skil ekki þá ákvörðun, ég hefði skilið það ef þeir ætla að gefa tvær mínútur, þá geta þeir fríað sig þannig. Að dæma víti, 10 sekúndur eftir, enginn að biðja um neitt og þeir stoppa tímann. Örugglega bara af því að þeir vildu að ÍBV myndi vinna leikinn, eða allavega fá tækifæri til að vinna leikinn, það er eina skýringin sem ég sé, sem þjálfari Gróttu, að dómararnir vildu sjá ÍBV fá tækifæri til að vinna þennan leik.“ Róbert telur að með þessum ummælum sé vegið að heiðarleika dómara leiksins og að þau séu ekki í anda íþróttarinnar. Arnar Daði gæti samkvæmt lögum HSÍ átt yfir höfði sér áminningu, sekt eða jafnvel leikbann vegna ummæla sinna.
Olís-deild karla Grótta Mest lesið Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Dagskráin í dag: Víkingur mætir Skaganum og Opna breska klárast Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Körfubolti Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Fyrrverandi stjórnarmaður Newcastle kaupir hlut í West Ham Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira