Þorgeir hættur eftir áratuga starf hjá Haukum Smári Jökull Jónsson skrifar 22. febrúar 2023 20:30 Þorgeir Haraldsson hefur verið formaður handknattleiksdeildar Hauka nánast síðan elstu menn muna. Vísir Þorgeir Haraldsson er hættur sem formaður handknattleiksdeildar Hauka en þetta var tilkynnt á Facebook síðu handknattleiksdeildar Hauka nú í kvöld.
Þorgeir Haraldsson er nafn sem flestir handknattleiksunnendur á Íslandi þekkja og andlit sem allir, sem hafa mætt á leik hjá Haukum síðustu áratugina, kannast við. Hann hefur verið formaður handknattleiksdeildar Hauka um árabil en stígur nú til hliðar eftir magnaðan feril í starfi formanns. Frá þessu var greint á Facebook síðu Hauka nú í kvöld og var jafnframt tilkynnt að Þorkell Magnússon, fyrrum leikmaður Hauka, muni taka við sem formaður. Í þáttunum Foringjarnir sem sýndir voru á Stöð 2 Sport árið 2021 var Þorgeir einn af viðmælendum Henrys Birgis Gunnarssonar og hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum. Í tilkynningu Hauka kemur fram að Þorgeir eigi keppnis- og stjórnunarferil sem spannar rúmlega hálfa öld á vettvangi handknattleiksdeildar Hauka og Knattspyrnufélagsins Hauka. Þorgeir hefur á þessu tímabili tekið þátt í gullaldartíð Hauka í bæði karla- og kvennaflokki og er leitun að aðila í sömu stöðu sem hefur setið jafn lengi eða fagnað jafn mörgum titlum. Verðandi formaður handknattleiksdeildarinar, Þorkell Magnússon, á sigursælan feril að baki sem leikmaður Hauka en hann hefur einnig starfað við þjálfun yngri flokka auk þess að sitja í stjórn.
Olís-deild karla Haukar Olís-deild kvenna Mest lesið Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Bjarki Már til franska stórveldisins Handbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira