FH-ingum enn neituð innganga í Eyjaklúbbinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2023 13:00 Sigursteinn Arndal talar við lærisveina sína sem eiga á hættu að vera sendir í sumarfrí í næsta leik. Vísir/Hulda Margrét Aðeins fjórum félögum hefur tekist að vinna ÍBV í úrslitakeppni úti í Vestmannaeyjum. Það leit út fyrir að það myndi fjölga í hópnum í gær en ótrúleg endurkoma heimamanna breytti því.
FH missti niður átta marka forskot í seinni hálfleik og Eyjamenn tryggðu sér á endanum sigur í framlengingu. ÍBV er þar með komið í 2-0 í undanúrslitaeinvígi liðanna og því aðeins einum sigri frá sæti í úrslitaeinvíginu. FH þarf nú að vinna næstu þrjá leiki til að slá ÍBV út. Næsti leikur er í Kaplakrika á miðvikudaginn kemur. Það fjölgaði ekki í Eyjaklúbbnum í gær en FH-ingar vonast til að fá aðra tilraun eftir tæpa viku. Áfram eru það bara Haukar (6 sinnum) Valur (5 sinnum), Fram (1 sinni) og Afturelding (1 sinni) sem hefur tekist að vinna Eyjamenn í leik í úrslitakeppni í Eyjum. FH-ingar eru ekki í þeim hópi en í gær var sjötta tilraun Hafnarfjarðarliðsins. Þeir gerðu gerðu reyndar jafntefli út í Eyjum í úrslitakeppninni 2021 en þá voru bara spilaðir tveir leikir og samanlögð úrslit réðu því hvort liðið færi áfram. Hinir fimm leikir FH-liðsins á Heimaey hafa allir tapast. FH-ingar töpuðu tvisvar úti í Eyjum í úrslitaeinvíginu 2018 og síðast þegar þeir slógu ÍBV út úr úrslitakeppninni, sem var fyrir 31 ári síðan, þá unnu Eyjamenn heimaleikinn. Tveir sigrar FH í Kaplakrika komu þeim í úrslitaeinvígið. Liðin sem eru í hópi með FH, að hafa spilað í úrslitakeppninni en aldrei unnið, eru: KA, ÍR, Grótta og Stjarnan.
Olís-deild karla FH ÍBV Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira