Búsett í Danmörku en flýgur heim í leiki með Aftureldingu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. september 2023 13:02 Sylvía Björt Blöndal ferðast lengri vegalengdir en flestir til að spila í Olís-deildinni. Vísir/Hulda Margrét Handknattleikskonan Sylvía Björt Blöndal hefur farið vel af stað með Aftureldingu í Olís-deild kvenna í handbolta og skorað 14 mörk í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins. Hún er hins vegar búsett í Danmörku og þarf því að fljúga til Íslands til að spila leiki liðsins.
Það er Handbolti.is sem vekur athygli á þessu, en Sylvía stundar meistaranám í Danmörku. Hún mun halda áfram að leika með liðinu eftir því sem hún hefur tök á þrátt fyrir að búa ytra næsta árið. Eftir því sem kemur fram í umfjöllun Handbolti.is um málið hefur Sylvía flogið heim til Íslands á föstudagskvöldum og aftur út til Danmerkur á sunnudögum. Það kemur svo í hlut Aftureldingar að greiða ferðakostnað. Afturelding hefur leikið tvo leiki það sem af er tímabilinu í Olís-deild kvenna. Liðið er nýliði í deildinni eftir að hafa tryggt sér sigur í Grill66-deildinni á síðasta tímabili og Sylvía hefur skorað 14 mörk fyrir liðið í leikjunum tveimur. Hún skoraði sjö mörk í 31-26 tapi gegn ÍR og önnur sjö í 29-28 sigri gegn Stjörnunni. „Námið hefur að sjálfsögðu algjöran forgang en Sylvía kemur heim og verður með okkur í þeim leikjum sem hún hefur tök á að taka þátt í,“ sagði Guðmundur Helgi Pálsson, þjálfari Aftureldingar í samtali við Handbolti.is. Sylvía mun sjálf sjá um að halda sér í formi með æfingum úti í Danmörku, auk þess að vera í reglulegu sambandi við þjálfara og leikmenn Aftureldingar. Næsti leikur Aftureldingar í Olís-deildinni er gegn Haukum næstkomandi fimmtudagskvöld, en óvíst er hvort Sylvía verði með í þeim leik.
Olís-deild kvenna Afturelding Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira