Óvissan heldur áfram um útboð næstu jarðganga Kristján Már Unnarsson skrifar 1. desember 2023 22:55 Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. Arnar Halldórsson Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vísar því til Alþingis að ákvarða hvort bíða eigi með útboð næstu jarðganga þar til séð verður hvernig ný bortækni reynist. Hann vonast til að það skýrist fyrir vorið hvernig jarðgangaáætlun verður fjármögnuð.
Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um þá óvissu sem ríkir um jarðgangagerð á Íslandi. Viðræður stjórnvalda við bandaríska fyrirtækið Earthgrid vekja spurningu um hvort bíða eigi með útboð næstu jarðganga þar til séð er hvort kyndilborun reynist raunhæf til að stórlækka kostnað. Frá undirritun viljayfirlýsingar í Vestmannaeyjum síðastliðið sumar um mögulega notkun kyndilborunar við jarðgangagerð á Íslandi. Frá vinstri: Björgmundur Örn Guðmundsson, fulltrúi EarthGrid, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.Stjórnarráðið „Við sjáum auðvitað hvort þessi tækni virkar í febrúar eða mars á næsta ári. Við erum með samgönguáætlun núna hjá þinginu og þar á meðal þessa jarðgangaáætlun. Þannig að þetta er soldið verkefni sem þingið þarf að kljást við. Og ætli ég sé nokkuð að leggja það á þingið að segja nákvæmlega hvað mér finnst um það,“ segir Sigurður Ingi. Jarðgangagerð hefur núna legið niðri hérlendis í yfir þrjú ár eða frá því Dýrafjarðargöng voru opnuð í október 2020. Fjarðarheiðargöng boðin út 2022, sagði Vegagerðin í frétt á heimasíðu sinni fyrir tveimur árum. Enn bólar ekkert á útboði þessa nærri fimmtíu milljarða króna verkefnis. Ástæðan: Óvíst er hvernig eigi að fjármagna göngin. Svona er gangamunni Fjarðarheiðarganga í Seyðisfirði teiknaður.Vegagerðin Ráðherrann segir beðið tillagna verkefnastjórnar um veggjöld af bílaumferð en ríkisstjórnin stefnir að því að frumvarp um málið komi fyrir Alþingi í vetur og fáist samþykkt. „Það væri auðvitað æskilegt að það gæti gerst fyrir vorið til þess að þær gætu ratað inn í næstu fjárlög,“ segir Sigurður Ingi. En er þá að orðið ólíklegt að jarðgangagerð verði boðin út á næsta ári? Ráðherrann vill ekki útloka útboð á næsta ári, það væri hægt á grundvelli samgönguáætlunar. „Við erum með ákveðna fjármögnun í gangi innan hennar, meðal annars til jarðganga. Jú, jú, það er hægt að fara af stað. En af þeim krafti sem metnaðarfull jarðgangaáætlun kallar á, það verður auðvitað ekki hægt fyrr en við vitum hvernig við fjármögnun það til enda.“ Göngin undir Fjarðarheiði milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar yrðu 13,3 kílómetra löng.Vegagerðin Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar eru næst á dagskrá, samkvæmt tillögu að samgönguáætlun. „Einu jarðgöngin klár til útboðs, það eru Fjarðarheiðargöng. Önnur munu þurfa að fara í umhverfismat og aðeins lengri hönnun.“ Ráðherrann vísar því til Alþingis ef breyta eigi forgangslistanum. „Þetta er auðvitað ekki auðvelt verkefni þegar við erum að horfa á svona risastórar, bæði framkvæmdir og kostnaðartölur. En ég treysti alveg þinginu til þess að glíma við það,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra í frétt Stöðvar 2, sem sjá má hér:
Jarðgöng á Íslandi Samgöngur Vegagerð Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Múlaþing Dýrafjarðargöng Vegtollar Tengdar fréttir Segir jarðgangaáætlun miklu raunhæfari með kyndilborun Ný tækni með kyndilborun jarðganga gerir áform um stórfellda jarðgangagerð hérlendis miklu raunhæfari, að mati Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra, sem segir tækifærið það spennandi fyrir Íslendinga að ekki sé hægt að sitja hjá. 27. nóvember 2023 20:10 Býður Íslendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarðgöng Evrópu Íslensk stjórnvöld eiga í viðræðum við bandarískt frumkvöðlafyrirtæki á sviði kyndilborunar um að bora jarðgöng mun ódýrar og hraðar en áður hefur þekkst. Fyrirtækið býðst til að byrja á því að bora lagnagöng til Vestmannaeyja á næsta ári á eigin ábyrgð. 26. nóvember 2023 20:10 Vilja Fjarðagöng fremur en Fjarðarheiðargöng Undirskriftasöfnun er hafin á netinu þar sem skorað er á samgönguyfirvöld að setja Fjarðagöng á Austfjörðum í forgang á samgönguáætlun, tvenn göng sem tengja myndu Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð. Slík göng yrðu þannig sett fram fyrir Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, sem núna eru áformuð sem næstu jarðgöng á samgönguáætlun. 25. nóvember 2023 09:09 Hringtenging með göngum nauðsynleg Nauðsynlegt er að ráðast í göng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar og Mjóafjarðar og Norðfjarðar um leið og göng yfir Fjarðarheiði líta dagsins ljós, svo hægt sé að ná hringtengingu á Austurlandi, ellegar sé erfitt að líta á svæðið sem eitt sameiginlegt atvinnusvæði. Þetta segir sveitastjóri Múlaþings. Skynsamlegast væri að fylgja Færeyingum í gangagerð. 15. júlí 2023 19:17 Áætlanir um fjórtán ný göng með gjaldtöku og uppbyggingu varaflugvalla Tæplega þúsund milljarðar fara í uppbyggingu samgöngumannvirkja á næstu fimmtán árum samkvæmt samgönguáætlun sem innviðaráðherra kynnti í dag. Lokið verði við uppbyggingu varaflugvalla fyrir alþjóðaflugið og áætlun lögð fram um gerð allt að fjórtán jarðganga sem öll verði með gjaldtöku ásamt eldri göngum. 13. júní 2023 20:05 Samgönguáætlun frestast og jarðgöng bíða nýs gjaldakerfis Innviðaráðherra hefur hætt við að leggja nýja samgönguáætlun fyrir Alþingi þetta vorið. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar sér ekki að næstu jarðgöng verði boðin út fyrr en búið verður að innleiða nýtt gjaldakerfi af umferð. 7. júní 2023 21:33 Tvenn göng á Mið-Austurlandi áætluð sjö milljörðum ódýrari Ákvörðun um lengstu og dýrustu veggöng Íslands, Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar, bíður Alþingis núna á vordögum. Annar valkostur, sem margir Austfirðingar hallast fremur að, tvenn göng milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar, yrði hins vegar sjö milljörðum króna ódýrari, að mati Vegagerðarinnar. 25. apríl 2023 21:10 Mest lesið Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Trump fundar með þjóðaröryggisráði Erlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Sjá meira
Segir jarðgangaáætlun miklu raunhæfari með kyndilborun Ný tækni með kyndilborun jarðganga gerir áform um stórfellda jarðgangagerð hérlendis miklu raunhæfari, að mati Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra, sem segir tækifærið það spennandi fyrir Íslendinga að ekki sé hægt að sitja hjá. 27. nóvember 2023 20:10
Býður Íslendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarðgöng Evrópu Íslensk stjórnvöld eiga í viðræðum við bandarískt frumkvöðlafyrirtæki á sviði kyndilborunar um að bora jarðgöng mun ódýrar og hraðar en áður hefur þekkst. Fyrirtækið býðst til að byrja á því að bora lagnagöng til Vestmannaeyja á næsta ári á eigin ábyrgð. 26. nóvember 2023 20:10
Vilja Fjarðagöng fremur en Fjarðarheiðargöng Undirskriftasöfnun er hafin á netinu þar sem skorað er á samgönguyfirvöld að setja Fjarðagöng á Austfjörðum í forgang á samgönguáætlun, tvenn göng sem tengja myndu Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð. Slík göng yrðu þannig sett fram fyrir Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, sem núna eru áformuð sem næstu jarðgöng á samgönguáætlun. 25. nóvember 2023 09:09
Hringtenging með göngum nauðsynleg Nauðsynlegt er að ráðast í göng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar og Mjóafjarðar og Norðfjarðar um leið og göng yfir Fjarðarheiði líta dagsins ljós, svo hægt sé að ná hringtengingu á Austurlandi, ellegar sé erfitt að líta á svæðið sem eitt sameiginlegt atvinnusvæði. Þetta segir sveitastjóri Múlaþings. Skynsamlegast væri að fylgja Færeyingum í gangagerð. 15. júlí 2023 19:17
Áætlanir um fjórtán ný göng með gjaldtöku og uppbyggingu varaflugvalla Tæplega þúsund milljarðar fara í uppbyggingu samgöngumannvirkja á næstu fimmtán árum samkvæmt samgönguáætlun sem innviðaráðherra kynnti í dag. Lokið verði við uppbyggingu varaflugvalla fyrir alþjóðaflugið og áætlun lögð fram um gerð allt að fjórtán jarðganga sem öll verði með gjaldtöku ásamt eldri göngum. 13. júní 2023 20:05
Samgönguáætlun frestast og jarðgöng bíða nýs gjaldakerfis Innviðaráðherra hefur hætt við að leggja nýja samgönguáætlun fyrir Alþingi þetta vorið. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar sér ekki að næstu jarðgöng verði boðin út fyrr en búið verður að innleiða nýtt gjaldakerfi af umferð. 7. júní 2023 21:33
Tvenn göng á Mið-Austurlandi áætluð sjö milljörðum ódýrari Ákvörðun um lengstu og dýrustu veggöng Íslands, Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar, bíður Alþingis núna á vordögum. Annar valkostur, sem margir Austfirðingar hallast fremur að, tvenn göng milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar, yrði hins vegar sjö milljörðum króna ódýrari, að mati Vegagerðarinnar. 25. apríl 2023 21:10