Rory McIlroy: Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2025 08:46 Rory McIlroy brosti út að eyrum þegar hann var kominn í græna jakkann í gær. Getty/Richard Heathcote Rory McIlroy viðurkenndi að hann var farinn að hugsa um það hvort að það kæmi kannski aldrei að honum eftir að hafa beðið í ellefu ár eftir að fullkomna alslemmu golfsins. Í gærkvöldi komst hann loksins í græna jakkann eftirsótta og hefur því unnið öll risamótin á ferli sínum.
Pressan var mikil á McIlroy og hann hefur oft kiknað undan henni áður. Það munaði reyndar ekki miklu að hann missti frá sér sigurinn í gær en honum tókst að lokum að landa sigri í bráðabana. Þetta var sautjánda Mastersmót McIlroy en hann tók fyrst þátt árið 2009. Hann hafði dreymt um að vinna þetta mót síðan hann var strákur. Þegar lokapúttið fór rétta leið og sigurinn var í höfn flæddu tilfinningarnar fram og Norður-Írinn átti erfitt með sig. Það var líka mjög auðvelt að samgleðjast með honum þá því það var enginn vafi um hversu miklu máli þetta skipti hann. Kemur kannski aldrei að mér „Það voru tímapunktar á seinni níu holunum þar sem ég hugsaði: Er ég að láta þetta renna frá mér aftur? Ég var í baráttu við sjálfan mig í dag og ekki við neinn annan,“ sagði Rory McIlroy. „Ég fór líka að hugsa um hvort það kæmi kannski aldrei að mér,“ sagði McIlroy. „Undanfarin tíu ár hef ég komið hingað með þá þungu byrði á öxlunum að reyna ná að loka alslemmunni,“ sagði McIlroy. Stoltur „Ég er svo stoltur af því að geta núna kallað mig Mastersmeistara,“ sagði McIlroy. „Þetta hefur verið mjög erfitt. Ekki bara að vinna risamót heldur að loka alslemmunni,“ sagði McIlroy. McIlroy grínaðist með það að umræðan hafi snúist mikið um hann fyrir Mastersmótin síðustu ár. „Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót?“ spurði McIlroy og brosti. Athyglin hefur skiljanlega verið mikil á honum enda átti hann möguleika á að komast í mjög fámennan hóp. Draumur að rætast „Þetta er draumur að rætast. Mig hefur dreymt um þetta eins lengi og ég man eftir mér,“ sagði McIlroy. „Síðan ég og pabbi vorum að horfa saman á Tiger Woods vinna græna jakkann árið 1997. Ég held að það hafi gefið mörgum í minni kynslóð innblástur að reyna að leika það eftir,“ sagði McIlroy. „Þetta er því besti dagurinn á minni golfævi. Með þessu hef ég bókstaflega látið drauma mína rætast,“ sagði McIlroy.
Golf Masters-mótið Mest lesið Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Enski boltinn Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Golf Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Enski boltinn Úlfarnir ráku Pereira Enski boltinn Er Tóti Túrbó ofmetinn? Körfubolti Eins og á gamlárskvöldi á Íslandi inni á leikvanginum Fótbolti Verður besta sjöþrautakona Íslands villiköttur eða bolabítur? Sport Sjáðu brot af því besta úr enska boltanum í dag Fótbolti Ótrúleg varnartölfræði Arsenal í október Fótbolti Fleiri fréttir Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Gunnlaugur Árni í níunda sæti á heimslista Barnabarn Donalds Trump keppir á LPGA-mótaröðinni Mun líklegast aldrei komast yfir þetta Jack Nicklaus fær sex milljarða í meiðyrðamáli Íslenski Tígurinn vann æsispennandi mót í Mississippi Uppfyllti óskina og fékk soninn í fangið á átjándu Rory McIlroy vill verða fyrirliði Ryder-liðs Evrópu Tiger Woods í enn eina bakaðgerðina Segir að stuðningsmenn Bandaríkjanna hafi farið yfir strikið Sló golfhögg með krókódíl rétt fyrir aftan sig „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Sjá meira