Viðskipti innlent

Jakob Val­geir lét Guð­bjart bróður sinn fara

Jakob Bjarnar skrifar
Jakob Valgeir (th) lét bróður sinn Guðbjart fara frá fyrirtækinu og settist sjálfur í stól framkvæmdastjóra.
Jakob Valgeir (th) lét bróður sinn Guðbjart fara frá fyrirtækinu og settist sjálfur í stól framkvæmdastjóra. vísir

Guðbjartur Flosason framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf var látinn fara í lok mars en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá blautu barnsbeini.

Jakob Valgeir Flosason hefur verið helsti eigandi útgerðarinnar þó fyrirtækið sé að sjötíu og fimm prósentum skrifað á eiginkonu hans Björgu Hildi Daðadóttur. Guðbjartur á 15 prósent og Brynjólfur Flosason tíu.

Eins og glöggir taka eftir bera Jakob Valgeir og Guðbjartur, og reyndar Brynjólfur einnig, sama föðurnafn og því hér um bræðrarimmu að ræða; Jakob Valgeir lét bróður sinn fara. Um fátt er meira talað í Bolungarvík og á Vestfjörðum öllum enda fyrirtækið afar öflugt sjávarútvegsfyrirtæki og öflugt fjárfestingarfélag að auki. Á landsvísu er þetta 15. stærsta sjávarútvegsfyrirtækið samkvæmt hlutdeild í aflamarki.

Heimildin greindi frá því 2021 að þeir bræður, Guðbjartur og Jakob Valgeir Flosasynir hafi verið þeir sem hæstu skatta greiddur á Vestfjörðum öllum.

Rætt hefur verið um ósætti milli þeirra bræðra en Guðbjartur gefur ekkert fyrir það, hann segist ekki ætla sér að drulla yfir einn né neinn.

„Það var bara komið að leiðarlokum,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis. Guðbjartur hefur verið hjá fyrirtækinu í 21 ár núna samfellt en hefur starfað hjá fyrirtækinu frá því að hann var krakki. Hann segir að það verði aðrir að svara fyrir það hver hafi komið í hans stað. Og það séu þau Jakob Valgeir og Björg Hildur Daðadóttir sem séu í forsvari fyrir fyrirtækið.

Þér hefur sem sagt verið ýtt út?

„Já, ég var látinn fara. Það var kannski komin einhver leiði í þetta samstarf, þegar maður hefur verið svona lengi í þessu.“

Guðbjartur segir þetta fínt, hann sé nú heimavinnandi húsmóðir en þau séu fimm manna fjölskylda.

„Það væsir ekkert um mig. Ég hef það ágætt. Ég held að það sé alveg áhugi fyrir mér á vinnumarkaði, ég held að ég sé nú ekki svo slæmur að ég finni hvergi vinnu. Ég hef sterkt bakland í kringum mig og er þokkalega liðinn,“ segir Guðbjartur sallarólegur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×