Belgar kveðja EM með sigri

Siggeir Ævarsson skrifar
Belgar fagna marki í kvöld sem síðar var reyndar dæmt af
Belgar fagna marki í kvöld sem síðar var reyndar dæmt af Vísir/Getty

Elísabet Gunnarsdóttir stýrði belgíska landsliðinu til sigurs gegn Portúgal í lokaleik B-riðilsins á Evrópumótinu í Sviss í kvöld í dramatískum leik.

Belgar komust yfir strax á 3. mínútu en Portúgal jafnaði á 87. Tuttugu mínútum áður var mark dæmt af Belgum og á 95. mínútu var annað mark dæmt af þeim en á 96. mínútu skoruðu Belgar enn á ný og nú fékk markið að standa.

Stelpurnar hennar Elísabetar kveðja EM því með sigri en bæði lið eru þó úr leik. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira