Hulda Clara ein á toppnum eftir dag númer tvö á Íslandsmótinu í golfi Árni Jóhannsson skrifar 8. ágúst 2025 18:45 vísir / ívar Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG tók afgerandi forystu í Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Hvaleyrarvellinum í Hafnarfirði í dag. Var þetta annar dagur Íslandsmótsins og spilaði Hulda á 71 höggum í dag og er fjórum höggum undir pari.
Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG tók afgerandi forystu í Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Hvaleyrarvellinum í Hafnarfirði í dag. Var þetta annar dagur Íslandsmótsins og spilaði Hulda á 71 höggum í dag og er fjórum höggum undir pari. Eftir fyrsta daginn þá deildi Hulda Clara fyrsta sætinu með Karen Lind Stefánsdóttir en Karen átti ekki góðan dag og spilaði á 10 yfir pari og datt niður í sjöunda sæti ásamt tveimur öðrum kylfingum. Hulda Clara leiðir með fimm höggum á næsta kylfing. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, úr Golfklúbbnum Keili, hoppaði upp í annað sætið en hún spilaði á einu höggi yfir pari í dag og er einu höggi yfir pari í heild að loknum öðrum deginum. Ragnhildur Kristinsdóttir, úr Golfklúbbi Reykjavíkur, gerði svo einstaklega vel og hoppaði upp um sex sæti í það þriðja með því að spila á pari í dag en hún er á þremur höggum yfir pari. Eftir annan dag Íslandsmótsins er skorið niður um helming þátttakenda og hafa 20 kylfingar lokið keppni. Síðastar inn eftir að niðurskurðarhnífnum hefur verið beitt eru Marianna Ulriksen, Guðrún Birna Snæþórsdóttir og Hafdís Alda Jóhannsdóttir sem allar koma úr Golfklúbbnum Keili.
Íslandsmótið í golfi Golf Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira