Viðskipti innlent

Gervi­greindin geti verið lykillinn að tolla­lækkun

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sigríður Mogensen er sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins,
Sigríður Mogensen er sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins,

Aukin viðskipti Íslendinga við bandarísk gervigreindarfyrirtæki gætu orðið lykillinn að því að fá bandaríska tolla á íslenskar vörur fellda niður eða lækkaða. Þetta segir sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins, sem kallar eftir því að stjórnvöld skipi sérstaka sendinefnd með fulltrúum einkageirans og hins opinbera, til að semja við Bandaríkjastjórn.

Fimmtán prósenta tollar á vörur fluttar frá Íslandi til Bandaríkjanna tóku gildi á fimmtudag í síðustu viku, en ráðherrar hafa sagt til skoðunar hvernig hægt sé að bregðast við og ná samkomulagi við Bandaríkin um lækkun eða afnám tollanna.

Sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins segir viðskiptatækifæri til staðar sem geti liðkað fyrir lækkun tollanna, sem hafi verið settir á vegna meints viðskiptahalla sem Bandaríkjamenn telji sér í óhag. Tækifærin felist meðal annars í möguleikanum á að íslensk gagnaver þjónusti bandarísk gervigreindarfyrirtæki í auknum mæli. Til að forsendur til aukinna viðskipta á þessu sviði skapist þurfi íslenskur iðnaður og stjórnvöld að snúa bökum saman.

„Og Ísland hefur fram að færa græna raforku, ákjósanlegt loftslag fyrir vinnslu gervigreindar og annað. Þetta eru ekki nýjar hugmyndir. En núna þurfum við að hugsa út fyrir boxið og skoða hvort við getum mögulega tengt þessi tækifæri við fyrirhugaðar samningaviðræður, sem verða vonandi sem fyrst við Bandaríkjastjórn um hugsanlega lækkun tolla,“ segir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins.

Samtal við stjórnvöld sé hafið, en útfæra þurfi næstu skref.

„Eitt af því sem við höfum kallað eftir í samtölum við stjórnvöld er að það verði jafnvel sett einhverskonar samninganefnd af stað, með aðilum úr einkageiranum og frá hinu opinbera. Þetta er bara risastórt hagsmunamál fyrir Ísland.“

Stjórnvöld þurfi að setja púður í að kortleggja tækifærin í þessum efnum og sjá hvað hægt sé að koma með að borðinu, nú þegar fjöldi ríkja bíði þess að ná samkomulagi við Bandaríkin um lækkun eða afnám tolla.

„Þá gæti það mögulega þýtt að við komumst framar í röðina.“


Tengdar fréttir

Lægri tollar á sam­keppnis­ríkin veiki stöðuna svo um munar

Framkvæmdastjóri hjá íslensku eldisfyrirtæki segir samkeppnishæfni gagnvart öðrum löndum sem flytji fisk til Bandaríkjanna nánast horfna, vegna 15 prósenta tolla á íslenskan innflutning. Lönd með sambærilega starfsemi hafi fengið á sig lægri tolla. Ráðherrar skoða hvað hægt sé að gera og segja enn möguleika á samkomulagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×