Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. október 2025 14:46 Snjó kyngdi niður á þriðjudaginn. Umferð var þung og tæki Vegagerðarinnar komust lítið að til að sinna snjómokstri. Vísir/Anton Brink Veðurfræðingur á von á því að íbúar á höfuðborgarsvæðinu vakni upp við gjörbreytta og þægilegri stöðu í fyrramálið eftir mikla samfélagslega röskun sökum snjósins í vikunni. Gríðarleg umferð ofan í snjókomu á þriðjudaginn hafi þjappað niður snjónum á sama tíma og tæki Vegagerðarinnar hafi ekki komist að til að moka. Fyrir vikið hafa ökumenn í borginni kynnst skrölti sem minnir á akstur á illa viðhöldnum malarvegum á landsbyggðinni.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku og ráðgjafaverktaki hjá Vegagerðinni, segir klakabunkana og tilheyrandi skrölt fyrst og fremst bundið við höfuðborgarsvæðið. Ástandið hafi verið óvenjulegt. „Það hlóðst upp svo mikill klaki og tróðst undir. Það snjóaði svo mikið yfir daginn á þriðjudaginn og það var umferð í gangi allan tímann. Hún tróð þennan snjó niður. Tækin komust aldrei að til að hreinsa,“ segir Einar. Umferðin hefur verið þung í vikunni og þá sérstaklega á annatímum að morgni og síðdegis.vísir/Anton Brink Svo hafi fryst, snjórinn orðið harður og að klaka. Erfiðlega hafi gengið að rífa upp klakann þar til hlánaði. Ástandið hafi líka verið slæmt á gangstéttum, stígum og bílaplönum. „Þetta er ekki alveg eins og við þekkjum yfir miðan vetur þegar það safnast upp bunkar á löngum tíma. Þá fara þeir yfirleitt seint. En það er tiltölulega auðvelt að eiga við þetta,“ segir Einar. Fólk sé þegar farið að finna mun í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu og líka utan þess. Fjölmörg óhöpp hafa orðið í umferðinni vegna færðarinnar.Vísir/Anton Brink „Það er flughálka á nokkrum vegum, örfáum, en mikið til er greiðfært. Það er orðið greiðfært frá Reykjavík upp í Norðurárdal, austur er greiðfært á hringveginum að Þjórsárbrú og líka upp að Geysi.“ Ástandið sé best þar sem hægt hafi verið að moka á meðan snjóaði sem mest. „Þannig er Reykjanesbrautin. Þar eru engir klakabúnkar.“ Vegabrautin sinnir helstu stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins á borð við Miklubraut, Kringlumýrarbraut, Sæbraut og Bústaðaveg. Hann segir hafa gengið mjög vel í gærkvöldi og nótt að losa klakann af þessum götum. Enn sé eitthvað eftir við Bústaðaveg sem eigi eftir að klára. Einstaka bílar á sumardekkjum hafa valdið töfum í umferðinni þegar þeir lenda í basli í minniháttar brekkum.Vísir/Anton Brink „Það gekk mjög vel í gærkvöldi og nótt þegar komst á friður frá umferð.“ Ástandið hafi verið slæmt og víða torfærur á vegum í umferðinni í gær. Eftir nóttina ætti fólk að finna mun. Fréttastofu barst ábending frá íbúa í Hvassaleitinu þar sem illa gekk að festa svefn vegna láta frá klakamulningi á Miklubraut í um 200 metra fjarlægð. „Þetta gerist ekki þegjandi og hljóðalaust, að reka tönnina ofan í og reyna að rífa klakann upp. Það segir sig sjálft,“ segir Einar. „Maður verður alveg var við söltun og mokstur í venjulegri vetrarþjónustu að næturlagi. Maður getur alveg heyrt í því.“ Hann horfir björtum augum til næstu daga. Snjóin muni taka tiltölulega fljótt upp. „Þetta er engin svakalega hröð leysing en þó sér maður snjóinn minnka með hverri klukkustund. Á morgun verður held ég allt gjörbreytt.“ Ekkert bendi til annars eins snjódags á næstunni. Þvert á móti lítur út fyrir að veðrið næstu daga verði hefðbundið miðað við þennan árstíma.
Snjómokstur Reykjavík Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Fleiri fréttir Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Sjá meira