Stórhættuleg eiturlyf flæða til landsins í sögulegu magni Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 24. nóvember 2025 19:06 Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að aldrei hafi eins mikið magn fíkniefna verið haldlagt á Keflavíkurflugvelli. Stórhættulegt nýtt efni, Nitzene, hafi haldið innreið sína Vísir Aldrei hefur verið lagt hald á eins mikið magn örvandi fíkniefna á Keflavíkurflugvelli og í ár. Þá hafa stórfelld eiturlyfjamál á flugvellinum aldrei verið fleiri. Neysla á nýju afar hættulegu efni virðist vera að færast í aukanna. Yfirlögfræðingur Lögreglunnar á Suðurnesjum segir þetta benda til gríðarlegs framboðs og eftirspurnar. Sprenging hefur orðið á innflutningi margra fíkniefna. Til að byrja með má nefna innflutning á nýgeðvirkum efnum þar á meðal Nitazene en Tollgæslan og Lögreglan á Suðurnesjum fundu efnin fyrst í litlum mæli á Keflavíkurflugvelli á síðasta ári, en á þessu ári hefur verið lagt hald á ríflega þrjátíu sinnum meira magn en þá. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli og Lögreglan á Suðurnesjum hafa lagt hald á þrjátíu sinnum meira magn af nýgeðvirkum efnum þar á meðan Nitazene, en á síðasta ári. (Heimild, Lögreglan á Suðurnesjum, magn er í stykkjatali)Vísir Ríkislögreglustjóri varar sérstaklega við þessu efni í nýrri skýrslu. Það sé afar hættulegt og tengist tugum til hundruð dauðsfalla í Evrópu. Kókaín, amfetamín. metamfetamín og kannabis í sögulegum hæðum Þá hefur verið lagt hald á meira en tvöfalt meira magn af kókaíni á Keflavíkurflugvelli það sem af er ári en en nokkru sinni áður eða næstum áttatíu og eitt kíló. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli og Lögreglan á Suðurnesjum hafa lagt hald á næstum 81 kíló af kókaíni á þessu ári. (Heimild, Lögreglan á Suðurnesjum, tölur eru í grömmum).Vísir Haldlagt amfetamín er ríflega tvöfalt meira nú en þegar það var mest árið 2019 eða um 18 kíló, það sama á við um metamfetamín. Tollgæslan og Lögreglan á Suðurnesjum hafa lagt hald á tvöfalt meira magn af Amfetamíni á þessu ári en þegar það var mest árið 2019. (Heimild, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, tölur eru í grömmum).Vísir Loks hefur verið lagt hald á fimmtungi meira af kannabis í ár en á síðasta ári þegar met var slegið eða alls um 264 kíló. Tollgæslan og Lögreglan á Suðurnesjum hafa lagt hald á 264 kíló af kannabis á Keflavíkurflugvelli það sem af er ári. Það er tíu sinnum meira en árið 2019.Vísir Hins vegar er minna um haldlagningu á ávana-og fíknilyfjum eins og ketamíni og oxy á þessu ári en í fyrra eða um átta kíló. Það er virðist vera minna um ávana- og fíknilyf í Keflavík eins og Ketamín og Oxy.Vísir Stórfelld brot aldrei fleiri Þá kemur ekki á óvart að stórfelld fíkniefnalagabrot hafa aldrei verið fleiri en í ár á Keflavíkurflugvelli eða næstum níutíu. Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að þrátt fyrir að lagt hafi verið hald á allt þetta magn virðist verð á fíkniefnunum á markaðnum ekki vera að lækka sem bendi til þess að það sé nóg framboð. Þá hljóti eftirspurnin líka að vera mikil. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli og Lögreglan á Suðurlandi lögðu hald á þessa ferðatösku fulla af kókaíni sem burðardýr reyndi að smygla til landsins á þessu ári. Þetta er aðeins lítill hluti þess magns sem embættin hafa lagt hald á, á þessu ári. Vísir „Við erum að slá met í haldlagningu á þessum alvarlegu og hættulegu fíkniefnum eins og kókaíni, amfetamíni, metamfetamíni og þessum nýju geðvirku efnum eins og Nitzene sem eru í raun eins konar eftirlíkingar af öðrum efnum. Þetta sýnir augljóslega mikla eftirspurn eftir þessum efnum hér á landi. Frárennslisrannsóknir gefa það líka til kynna. Skýringarnar geta verið fjölmargar eins og mannfjölgun, fleiri ferðamenn, fleiri brotahópar og frábær árangur tollgæslu og lögreglu á Keflavíkurflugvelli,“ segir Alda. Hún segir nýja efnið eða Nitzene stórhættulegt. „Bara brot úr einni töflu getur banað fólki. Ég vil bara ítreka það að fólk neyti ekki þessara efna.“ Skipulögð brotastarfsemi íslenskra og erlendra hópa Alda segir að brotin séu langflest þaulskipulögð af íslenskum og erlendum glæpahópum. „Langflest málin tengjast skipulagðri brotastarfsemi,“ segir Alda. Hún segir að mun meira sé um en áður að fólk reyni að flytja inn efnin í vökvaformi. „Innflutningur í vökvaformi hefur aukist gríðarlega. Það segir okkur að þá eru efnin útbúin hér á landi, þ.e. neysluskammtarnir og framleiðslan fer fram hér,“ segir Alda. Neydd í verkefnið Hún segir að oftast sé um að ræða svokölluð burðardýr sem séu að reyna að koma efnunum til landsins en þau finnist líka í flugsendingum. Fólk hafi þetta ýmist að atvinnu eða sé neytt til starfans. „Þessi svokölluðu burðadýr eru í yfirgnæfandi meirihluta erlendir ríkisborgarar. Stundum er fólkið frá löndum utan Evrópusambandsins. Þetta eru allt frá því að vera atvinnuburðardýr og í niður í að þetta er fólk í viðkvæmri stöðu sem hefur verið neytt í verkefnið,“ segir Alda. Jón Halldór Sigurðsson lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á Suðurnesjum man ekki eftir öðru eins flóði fíkniefna. Vísir Jón Halldór Sigurðsson lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á Suðurnesjum hefur sinnt málaflokknum í áravís og man ekki eftir öðru eins flóði fíkniefna til landsins. Hann segir algengt að fólk reyni að smygla efnum í ferðatöskum en í raun séu aðferðinar óteljandi. „Þegar fólk reynir að nota ferðatöskur er innihald þeirra venjulega fjarlægt og fíkniefnin svo falin í fölsum eða byrði töskunnar. Það er misjafnt hversu faglega þetta er gert. En svo er alls konar notað eins og styttur, blómapottar og fleira til að fela fíkniefnin í. Fólk getur verið afar hugmyndaríkt í innflutningi á eiturlyfjum til landsins,“ segir hann. Fíkniefnabrot Lögreglan Keflavíkurflugvöllur Isavia Lögreglumál Smygl Tengdar fréttir Töflurnar tuttugu þúsund falsaðar og innihéldu annað hættulegt efni Tuttugu þúsund töflur sem tollverðir haldlögðu á Keflavíkurflugvelli voru ekki af gerðinni Oxycontin eins og fyrst var talið. Heldur er um að ræða töflu sem innihalda svokallað Nítazene, sem er sagt hættulegt heilsu manna. 3. apríl 2025 15:27 Þúsund sinnum sterkara en morfín og erfitt að þekkja Nýmyndaður ópíóíði sem óttast er að kominn sé í dreifingu hér á landi er þúsund sinnum sterkari en morfín að sögn réttarefnafræðings. Skimað hefur verið eftir efninu undanfarin ár en efnið er mjög svipað í útliti og aðrir ópíóðar og er talið stórhættulegt. 5. apríl 2025 19:00 Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Nítján ára og sautján ára táningsstúlkur hafa verið dæmdar í tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn Oxycontin. Þær voru gripnar með tuttugu þúsund töflur, sem merktar voru sem Oxycontin, á Keflavíkurflugvelli en töflurnar innihéldu allt annað efni. Það efni er hættulegt en var ekki að finna á lista yfir efni sem bönnuð eru hér á landi. Því voru þær sýknaðar af innflutningnum en sakfelldar fyrir tilraun til innflutnings. Efninu hefur nú verið bætt á bannlista. 26. september 2025 14:36 Mest lesið Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Sjá meira
Sprenging hefur orðið á innflutningi margra fíkniefna. Til að byrja með má nefna innflutning á nýgeðvirkum efnum þar á meðal Nitazene en Tollgæslan og Lögreglan á Suðurnesjum fundu efnin fyrst í litlum mæli á Keflavíkurflugvelli á síðasta ári, en á þessu ári hefur verið lagt hald á ríflega þrjátíu sinnum meira magn en þá. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli og Lögreglan á Suðurnesjum hafa lagt hald á þrjátíu sinnum meira magn af nýgeðvirkum efnum þar á meðan Nitazene, en á síðasta ári. (Heimild, Lögreglan á Suðurnesjum, magn er í stykkjatali)Vísir Ríkislögreglustjóri varar sérstaklega við þessu efni í nýrri skýrslu. Það sé afar hættulegt og tengist tugum til hundruð dauðsfalla í Evrópu. Kókaín, amfetamín. metamfetamín og kannabis í sögulegum hæðum Þá hefur verið lagt hald á meira en tvöfalt meira magn af kókaíni á Keflavíkurflugvelli það sem af er ári en en nokkru sinni áður eða næstum áttatíu og eitt kíló. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli og Lögreglan á Suðurnesjum hafa lagt hald á næstum 81 kíló af kókaíni á þessu ári. (Heimild, Lögreglan á Suðurnesjum, tölur eru í grömmum).Vísir Haldlagt amfetamín er ríflega tvöfalt meira nú en þegar það var mest árið 2019 eða um 18 kíló, það sama á við um metamfetamín. Tollgæslan og Lögreglan á Suðurnesjum hafa lagt hald á tvöfalt meira magn af Amfetamíni á þessu ári en þegar það var mest árið 2019. (Heimild, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, tölur eru í grömmum).Vísir Loks hefur verið lagt hald á fimmtungi meira af kannabis í ár en á síðasta ári þegar met var slegið eða alls um 264 kíló. Tollgæslan og Lögreglan á Suðurnesjum hafa lagt hald á 264 kíló af kannabis á Keflavíkurflugvelli það sem af er ári. Það er tíu sinnum meira en árið 2019.Vísir Hins vegar er minna um haldlagningu á ávana-og fíknilyfjum eins og ketamíni og oxy á þessu ári en í fyrra eða um átta kíló. Það er virðist vera minna um ávana- og fíknilyf í Keflavík eins og Ketamín og Oxy.Vísir Stórfelld brot aldrei fleiri Þá kemur ekki á óvart að stórfelld fíkniefnalagabrot hafa aldrei verið fleiri en í ár á Keflavíkurflugvelli eða næstum níutíu. Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að þrátt fyrir að lagt hafi verið hald á allt þetta magn virðist verð á fíkniefnunum á markaðnum ekki vera að lækka sem bendi til þess að það sé nóg framboð. Þá hljóti eftirspurnin líka að vera mikil. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli og Lögreglan á Suðurlandi lögðu hald á þessa ferðatösku fulla af kókaíni sem burðardýr reyndi að smygla til landsins á þessu ári. Þetta er aðeins lítill hluti þess magns sem embættin hafa lagt hald á, á þessu ári. Vísir „Við erum að slá met í haldlagningu á þessum alvarlegu og hættulegu fíkniefnum eins og kókaíni, amfetamíni, metamfetamíni og þessum nýju geðvirku efnum eins og Nitzene sem eru í raun eins konar eftirlíkingar af öðrum efnum. Þetta sýnir augljóslega mikla eftirspurn eftir þessum efnum hér á landi. Frárennslisrannsóknir gefa það líka til kynna. Skýringarnar geta verið fjölmargar eins og mannfjölgun, fleiri ferðamenn, fleiri brotahópar og frábær árangur tollgæslu og lögreglu á Keflavíkurflugvelli,“ segir Alda. Hún segir nýja efnið eða Nitzene stórhættulegt. „Bara brot úr einni töflu getur banað fólki. Ég vil bara ítreka það að fólk neyti ekki þessara efna.“ Skipulögð brotastarfsemi íslenskra og erlendra hópa Alda segir að brotin séu langflest þaulskipulögð af íslenskum og erlendum glæpahópum. „Langflest málin tengjast skipulagðri brotastarfsemi,“ segir Alda. Hún segir að mun meira sé um en áður að fólk reyni að flytja inn efnin í vökvaformi. „Innflutningur í vökvaformi hefur aukist gríðarlega. Það segir okkur að þá eru efnin útbúin hér á landi, þ.e. neysluskammtarnir og framleiðslan fer fram hér,“ segir Alda. Neydd í verkefnið Hún segir að oftast sé um að ræða svokölluð burðardýr sem séu að reyna að koma efnunum til landsins en þau finnist líka í flugsendingum. Fólk hafi þetta ýmist að atvinnu eða sé neytt til starfans. „Þessi svokölluðu burðadýr eru í yfirgnæfandi meirihluta erlendir ríkisborgarar. Stundum er fólkið frá löndum utan Evrópusambandsins. Þetta eru allt frá því að vera atvinnuburðardýr og í niður í að þetta er fólk í viðkvæmri stöðu sem hefur verið neytt í verkefnið,“ segir Alda. Jón Halldór Sigurðsson lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á Suðurnesjum man ekki eftir öðru eins flóði fíkniefna. Vísir Jón Halldór Sigurðsson lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á Suðurnesjum hefur sinnt málaflokknum í áravís og man ekki eftir öðru eins flóði fíkniefna til landsins. Hann segir algengt að fólk reyni að smygla efnum í ferðatöskum en í raun séu aðferðinar óteljandi. „Þegar fólk reynir að nota ferðatöskur er innihald þeirra venjulega fjarlægt og fíkniefnin svo falin í fölsum eða byrði töskunnar. Það er misjafnt hversu faglega þetta er gert. En svo er alls konar notað eins og styttur, blómapottar og fleira til að fela fíkniefnin í. Fólk getur verið afar hugmyndaríkt í innflutningi á eiturlyfjum til landsins,“ segir hann.
„Bara brot úr einni töflu getur banað fólki. Ég vil bara ítreka það að fólk neyti ekki þessara efna.“
Fíkniefnabrot Lögreglan Keflavíkurflugvöllur Isavia Lögreglumál Smygl Tengdar fréttir Töflurnar tuttugu þúsund falsaðar og innihéldu annað hættulegt efni Tuttugu þúsund töflur sem tollverðir haldlögðu á Keflavíkurflugvelli voru ekki af gerðinni Oxycontin eins og fyrst var talið. Heldur er um að ræða töflu sem innihalda svokallað Nítazene, sem er sagt hættulegt heilsu manna. 3. apríl 2025 15:27 Þúsund sinnum sterkara en morfín og erfitt að þekkja Nýmyndaður ópíóíði sem óttast er að kominn sé í dreifingu hér á landi er þúsund sinnum sterkari en morfín að sögn réttarefnafræðings. Skimað hefur verið eftir efninu undanfarin ár en efnið er mjög svipað í útliti og aðrir ópíóðar og er talið stórhættulegt. 5. apríl 2025 19:00 Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Nítján ára og sautján ára táningsstúlkur hafa verið dæmdar í tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn Oxycontin. Þær voru gripnar með tuttugu þúsund töflur, sem merktar voru sem Oxycontin, á Keflavíkurflugvelli en töflurnar innihéldu allt annað efni. Það efni er hættulegt en var ekki að finna á lista yfir efni sem bönnuð eru hér á landi. Því voru þær sýknaðar af innflutningnum en sakfelldar fyrir tilraun til innflutnings. Efninu hefur nú verið bætt á bannlista. 26. september 2025 14:36 Mest lesið Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Sjá meira
Töflurnar tuttugu þúsund falsaðar og innihéldu annað hættulegt efni Tuttugu þúsund töflur sem tollverðir haldlögðu á Keflavíkurflugvelli voru ekki af gerðinni Oxycontin eins og fyrst var talið. Heldur er um að ræða töflu sem innihalda svokallað Nítazene, sem er sagt hættulegt heilsu manna. 3. apríl 2025 15:27
Þúsund sinnum sterkara en morfín og erfitt að þekkja Nýmyndaður ópíóíði sem óttast er að kominn sé í dreifingu hér á landi er þúsund sinnum sterkari en morfín að sögn réttarefnafræðings. Skimað hefur verið eftir efninu undanfarin ár en efnið er mjög svipað í útliti og aðrir ópíóðar og er talið stórhættulegt. 5. apríl 2025 19:00
Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Nítján ára og sautján ára táningsstúlkur hafa verið dæmdar í tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn Oxycontin. Þær voru gripnar með tuttugu þúsund töflur, sem merktar voru sem Oxycontin, á Keflavíkurflugvelli en töflurnar innihéldu allt annað efni. Það efni er hættulegt en var ekki að finna á lista yfir efni sem bönnuð eru hér á landi. Því voru þær sýknaðar af innflutningnum en sakfelldar fyrir tilraun til innflutnings. Efninu hefur nú verið bætt á bannlista. 26. september 2025 14:36