Snéru upp á klassískt jólalag Danól 19. desember 2025 11:11 Hauk Viðar Alfreðsson dreymdi klassískt jólalag þegar hann vann að herferð fyrir Essie. Listakonan Rakel Tómasdóttir myndskreytti herferðina. „Þessi fyrirsögn kom til mín í draumi og mér fannst hún henta einstaklega vel,“ segir Haukur Viðar Alfreðsson glottandi en hann er hugmyndasmiðurinn á bak við sniðugt slagorð jólalínu Essie þessi jólin sem hefur vakið athygli; „Ég lakka svo til“. „
Við unnum jólaherferðina með snillingunum hjá Cirkus en Haukur Viðar, textasmiður og pönkari, vísar þarna svo meistarlega vel í lag Svölu Björgvins sem heitir einmitt 'Ég hlakka svo til'. Einnig er verið að leggja áherslu á að naglalökk eru sérstaklega vinsæl um jólin,“ segir Eva Birna Ormslev, vörumerkjastjóri Essie hjá Danól. „Listakonan Rakel Tómasdóttir málaði einstaklega fallega jólamynd fyrir herferðina með litum úr línunni.“ Eva segir naglalökk alltaf vinsæl í leynivinagjafir og í jólagjafir. „Í kringum hátíðarnar vilja viðskiptavinir bæta í litasafnið sitt nýjum hátíðlegum litum eða fylla á sína klassísku liti. Rauðar neglur eru alltaf klassískar um hátíðarnar en sífellt fleiri velja glimmer eða önnur skrautleg lökk til að nota yfir aðra liti eða eina og sér. Jólalínan frá Essie í ár er reyndar svolítið óhefðbundin þar sem grænn er í aðalhlutverki, ásamt rauðum, bleikum og bláum lit. Auk þeirra er krómað yfirlakk sem fer vel við alla liti línunnar.“ „Vöruúrval Essie samanstendur af hefðbundnum naglalökkum, gellökkum og lökkum fyrir þau sem eru á hraðferð og þorna á innan við mínútu. Auk þess erum við með fjölbreytt úrval af meðferðum til að styrkja neglur ásamt vörum fyrir almenna naglaumhirðu,“ segir Eva. Leiðandi vörumerki Essie hefur frá stofnun verið leiðandi í framleiðslu á hágæða naglalökkum og vörum fyrir naglaumhirðu sem eru notaðar um allan heim, bæði af fagfólki og almenningi. Vörumerkið býður upp á fjölbreytt úrval af naglalökkum sem hafa verið framleidd í þúsundum lita sem móta tískustefnur ár eftir ár og gleðja litaglaða um allan heim. Með fjölbreyttu úrvali ættu allir að geta fundið sinn lit fyrir hvaða tilefni sem er.
Tíska og hönnun Jól Mest lesið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Nakinn á kóræfingu Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira