Þrír vasaþjófar handteknir á gistiheimili Laugarneshverfi Lovísa Arnardóttir skrifar 19. desember 2025 09:19 Mennirnir eru grunaðir um þjófnað í Laugarneshverfi og mögulega víðar. Vísir/Vilhelm Þrír voru handteknir í umfangsmikilli lögregluaðgerð á gistiheimili í Laugarneshverfi í Reykjavík í gærkvöldi. Fólkið eru grunað um skipulagðan þjófnað á stór höfuðborgarsvæðinu. Þau eru grunuð um að hafa stolið bæði úr verslunum og af fólki matvælum, fjármunum og fleiru. Fyrst var greint frá á RÚV.
Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að lögregla meti nú hvort fólkið verði ákært, og í kjölfarið sótt um síbrotagæslu, eða hvort þeim verði vísað úr landi. Hann segir lögreglu hafa fengið um tug tilkynninga varðandi þjófnaðinn og eigi jafnvel von á fleiri tilkynningum. Hann segir vasaþjófana af erlendum uppruna og að þeir hafi ekki verið lengi á landinu. Þeir eru af báðum kynjum. „Það er það sem gerir þau svo ósýnileg, þau vinna í pörum og fólk á ekkert endilega von á þessu frá þeim,“ segir Unnar og að þetta fólk einbeiti sér sérstaklega að eldra fólki. Ekki vera með mikla peninga á sér Lögreglan hvetji fólk til að vera ekki með mikla peninga á sér, og ef það er með þá, að hafa þá ekki sýnilega. Fólkið horfi yfir öxlina á fólki og sé að fylgjast vel með. Þá segir Unnar lögregluna mæla með því að nota frekar greiðslukort og að vera með eitthvað hámark á daglegum úttektum á kortinu. „Við mælum með því að fólk búi sér til einhverjar varnir.“ Stutt er síðan tveimur mönnum var vísað úr landi fyrir vasaþjófnað en Unnar segir mennina sem voru handteknir í gær hafa beitt þekktum aðferðum vasaþjófa. Hann segir ekki liggja fyrir hvort mennirnir tengist þeim sem var vísað úr landi í nóvember en þeir hafi ekki verið lengi á landinu og virðist hafa komið til landsins í þessum eina tilgangi. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira