Hápunktur ársins að jafna pabba á heimavelli Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. desember 2025 09:02 Guðrún Brá varð Íslandsmeistari í fjórða sinn í sumar, líkt og Björgvin faðir hennar afrekaði á sínum tíma. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, endaði árið á góðum nótum í Marokkó og fer jákvæð inn í jólafrí og næsta tímabil, þar sem hún mun njóta góðs af nýstofnuðum launasjóði. Hápunktur ársins var hins vegar Íslandsmeistaratitilinn í sumar.
Guðrún Brá barðist í óvæntu ofsaveðri í Marokkó í síðustu viku um sæti á Evrópumótaröðinni. Hún leiddi listann eftir fyrsta keppnisdag en var á endanum tveimur höggum frá því að tryggja sér fullan keppnisrétt og verður því með hálfan þátttökurétt á næststerkustu mótaröð heims á næsta ári. „Ég náði næstbesta árangrinum sem ég hefði getað náð, þannig að ég fer bara sátt í jólafrí. Þetta er mjög langt og erfitt mót, það er hærra spennustig þarna en vanalega. Þetta er ótrúlega lítill munur, á topp tuttugu eða ekki, munaði bara tveimur höggum“ sagði Guðrún, sem þurfti ekki bara að þreyta fjögurra daga úrtökumót heldur einnig þriggja daga inntökumót áður. Glæsilegur árangur og Guðrún fer sátt í jólafríið en hápunkti ársins var ekki endilega náð í Marokkó heldur í Golfklúbbi Keilis í haust. „Mjög skemmtilegt í sumar að hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli, það var extra skemmtileg og pabbi er búinn að vinna fjórum sinnum þannig að ég náði honum“ sagði Guðrún, dóttir Björn Sigurbergssonar. Björgvin (l.t.v.) var liðsstjóri landsliðsins á EM 2017. Guðrún sést fyrir miðju á myndinni. Skiptir öllu máli Undirbúningur fyrir næsta tímabil hjá atvinnukylfingnum hefst strax á nýju ári og þar mun koma sér vel að Guðrún var ein af tveimur golfurum sem fékk úthlutað úr launasjóði ÍSÍ. „Það skiptir öllu máli, þetta er bara frábært skref fyrir íslenskar íþróttir og afreksfólk, þannig að vonandi bara stækkar þetta með árunum.“ Rætt var við Guðrúnu í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum efst.
Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Tveir nýliðar í landsliðshópnum Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Sjá meira