Segjast bæði hafa tekið við völdum Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 4. janúar 2026 08:18 Trump sagðist ætla að taka við völdum í Venesúela tímabundið en Rodriguez kvaðst í ávarpi sínu til venesúelsku þjóðarinnar taka við af Maduro. AP Hæstiréttur Venesúela hefur skipað Delcy Rodríguez, varaforseta ríkisins, að taka við embætti forseta meðan Nicolás Maduro er í haldi Bandaríkjamanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Venesúela yrði undir stjórn Bandaríkjamanna þar til valdaskipti gætu orðið með öruggum hætti.
Bandaríkjaher hóf loftárásir á hernaðarinnviði í Venesúela aðfaranótt laugardags. Forsetahjónin, Nicolás og Celia Maduro voru handtekin og færð í varðhald í New York-borg. Bandaríkjastjórn hefur ákært forsetann fyrir „fíkniefnahryðjuverk“ og kókaín- og vopnasmygl. „Við munum stjórna landinu þar til við getum tryggt örugg, viðeigandi og skynsamleg valdaskipti,“ sagði Trump á blaðamannafundi í Mar-a-Lago í Flórída í gær. Þar með talið kveðst hann ætla að tala yfir olíuiðnað Venesúela og færa olíuinnviði í betra horf. Í nótt bárust fréttir af því að Hæstiréttur Venesúela í Karakas hafi úrskurðað að varaforsetinn Delcy Rodríguez skyldi taka við einræðisstjórn Maduro. Samkvæmt umfjöllun Reuters sagði dómstóllinn að mikilvægt væri að setja Rodriguez inn í embættið til að tryggja áframhaldandi starfsemi stjórnsýslu ríkisins og alhliða varnir þjóðarinnar. Rodriguez ávarpaði venesúelsku þjóðina í gærkvöldi. Hún fordæmdi handtöku Maduro og sagði yfirvöld tilbúin að verja landið fyrir frekari árásum Bandaríkjamanna. Venesúela verði aldrei nýlenda annars lands á ný. Með ávarpinu gekk hún þvert á orð Trump sem sagði hana hafa samþykkt að hann tæki við völdum í landinu, enda hefði hún ekki átt annarra kosta völ.
Venesúela Bandaríkin Donald Trump Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Tengdar fréttir Leiddur frá borði hlekkjaður og með bundið fyrir augu Nicolás Maduro forseti Venesúela og Cilia Maduro eiginkona hans eru komin til New York-borgar. Bandarísk herþota með forsetahjónin hlekkjuð um borð er lent á Stewart-flugherstöðinni. 3. janúar 2026 22:41 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Leiddur frá borði hlekkjaður og með bundið fyrir augu Nicolás Maduro forseti Venesúela og Cilia Maduro eiginkona hans eru komin til New York-borgar. Bandarísk herþota með forsetahjónin hlekkjuð um borð er lent á Stewart-flugherstöðinni. 3. janúar 2026 22:41