„En við þurfum samt Grænland“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. janúar 2026 18:30 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP/Alex Brandon Donald Trump Bandaríkjaforseti var myrkur í máli þegar blaðamaður innti hann eftir því hvaða þýðingu nýafstaðin árás á Venesúela og handtaka á forseta landsins hefði fyrir Grænlendinga. Hann ítrekaði samt mikilvægi þess að Bandaríkin innlimi Grænland.
Donald Trump ræddi við blaðamann The Atlantic um árásina á Venesúela. Bandaríkjaher gerði loftárásir á höfuðborg landsins Karakas og tóku forseta landsins, Nicolás Maduro, fastan ásamt eiginkonu hans. Sá fyrrnefndi dvelur nú í fangelsi í New York-borg. Forseti sem láti slag standa Á blaðamannafundi sem Trump hélt síðdegis í gær ásamt utanríkisráðherra sínum, Marco Rubio, varnarmálaráðherra sínum, Pete Hegseth, og æðsta yfirmanni Bandaríkjahers, Dan Caine, var utanríkisráðherrann afdráttarlaus í yfirlýsingum. Sérstaka athygli hafa ummæli hans um framferði Bandaríkjaforseta vakið. Á fundinum gerði Marco Rubio utanríkisráðherra það eiturskýrt að heimurinn þyrfti að átta sig á því að Bandaríkin hefðu nú forseta sem léti slag standa. „Þegar hann segist ætla að gera eitthvað, þegar hann segist ætla að bregðast við einhverju vandamáli, meinar hann það,“ sagði hann meðal annars og var orðið heitt í hamsi. Leiðtogar Evrópu hafa skirrst við að fordæma þessar aðgerðir sem í samhengi við ummæli forkólfa bandarísku ríkisstjórnarinnar svipa til beinnar ógnar við fullveldi Grænlands og í leiðinni danska samveldisins. Hálfkveðnar vísur Trump fór aðspurður með hálfkveðnar vísur og lét ekki í það skína að hann væri mótfallinn því að beita Grænlendinga valdi. „Þeir þurfa að skoða það sjálfir. Ég bara veit það ekki,“ sagði hann inntur eftir því hvaða meiningu atburðir liðinna daga hefðu fyrir landsstjórnina í Nuuk. „Hann var mjög rausnarlegur í minn garð, hann Marco, í gær,“ bætti hann svo við. „Sko, ég var ekki að vísa til Grænlands á þeim tíma. En við þurfum samt Grænland, ekki spurning. Við þurfum það í þágu varna,“ klykkti hann út með.
Grænland Bandaríkin Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira