Gæti leitt til aukinnar íhlutunar í Atlantshafi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 7. janúar 2026 20:04 Skipið gekk ýmist undir nöfnunum Bella og Marinera á leið sinni yfir Atlantshafið. EUCOM Bandaríski herinn tók yfir stjórn rússnesks olíuflutningaskips í íslenskri efnahagslögsögu fyrr í dag eftir tveggja vikna eftirför og tóku rússneska áhafnarmeðlimi um borð fasta. Rússar hafa fordæmt aðgerðina og krafist þess að borgurum sínum verði skilað heim en því verða Bandaríkjamenn ekki við.
Samúel Karl Ólason, blaðamaður Vísis, hefur fylgst með ferðum skipsins um Atlantshafið eins og haukur og greint frá öllum helstu vendingum. Hann segir málið snúast ekki síður um aðra yfirlýsta erkifjendur Bandaríkjaforseta en Rússa. Flugvélar frá Keflavík og Skotlandi Yfirtakan hafi verið liður í settri herkví Bandaríkjanna á Venesúela. Þetta tiltekna skip var þó ekki að flytja olíu frá Venesúela heldur vilja Bandaríkjamenn meina að skipið hafi verið notað til að smygla farmi fyrir Hezbollah og Íran. Gerð hafi verið tilraun til að stöðva ferð skipsins í Karíbahafinu en það hafi komist undan. „Þá dró rússnesk áhöfnin rússneskan fána að húni, breytti nafninu og setti stefnuna norður,“ sagði Samúel í kvöldfréttum Sýnar þar sem hann fór yfir málin. Athygli hefur vakið hérlendis að aðgerðin fór fram í íslenskri efnahagslögsögu en vert er að gæta þess að efnahagslögsaga jafngildir engan veginn landhelgi. Aðgerðin fór fram á alþjóðlegu hafsvæði sem tilheyrir ekki Íslandi þó svo að Ísland megi eitt landa ráðstafa auðlindum svæðisins. Í aðgerðinni tóku þátt bandarískar herflugvélar sem flugu frá Keflavík en sömuleiðis breskar flugvélar. Frá Íslandi var einni kafbátaleitarvél flogið og eftirlitsflugvél en fleirum var svo flogið úr hinni áttinni frá Skotlandi. „Við erum ekki vön svona umstangi í okkar nágrenni hér á Íslandi,“ sagði Samúel. Skipverjarnir fluttir til Bandaríkjanna Hann sagði erfitt að segja til um hvaða afleiðingar aðgerðin gæti haft í för með sér, ef einhverjar. Rússneskir áhafnarmeðlimir skipsins verði fluttir til Bandaríkjanna þar sem séð yrði til hvort yrði réttað yfir þeim þar. „Þetta gæti leitt til þess að Evrópumenn stoppi fleiri skip í skuggaflotanum,“ sagði hann að lokum en þetta tiltekna skip er talið tilheyra skuggaflota Rússa svokölluðum sem þeir nota til að ganga á svig við viðskiptaþvinganir Vesturlanda.
Bandaríkin Donald Trump Venesúela Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Rússland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira