Stuðningur við Grænland ómetanlegur og hvetur Íslendinga til að mæta Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 14. janúar 2026 22:43 Julie Rademacher, formaður Uagut, Landssamtaka Grænlendinga í Danmörku, ræddi við fréttastofu á skrifstofu samtakanna í Kaupmannahöfn í dag. Vísir/Elín Formaður Landssamtaka Grænlendinga í Danmörku hvetur Íslendinga og aðra sem búsettir eru í Danmörku til að sýna samstöðu með Grænlendingum í verki með því að mæta á samstöðumótmæli sem skipulögð hafa verið víðsvegar um Danmörku á laugardaginn. Hún segir Grænlendinga þurfa á andlegri fyrstu hjálp að halda í ljósi málflutnings Bandaríkjaforseta um að vilja eignast landið, með einum eða öðrum hætti.
Hún segir að stuðningur Íslendinga og annarra við Grænlendinga á þessum erfiðu tímum skipti sköpum, og slíkum stuðningi muni Grænlendingar aldrei gleyma. Nokkur grænlensk samtök hafa skipulagt mótmæli og samstöðufundi með Grænlandi og Grænlendingum í fjórum stærstu borgum Danmerkur í hádeginu á laugardaginn, en mótmælt verður einnig í Grænlandi. Vona það besta en búa sig undir það versta „Við vonum að það mæti margir. Svo ef það eru Íslendingar eða Færeyingar eða aðrir hér í Danmörku, þá geta þau mætt og sýnt samstöðu. Komið endilega á samstöðufundinn, það myndi hafa mikla þýðingu fyrir okkur,“ segir Julie Rademacher, formaður Uagut, Landssamtaka Grænlendinga í Danmörku, í samtali við fréttastofu. Hún segir að um það bil fjórði hver Grænlendingur sé búsettur í Danmörku, og því búist hún við nokkru fjölmenni. Hún viti að það eigi líka við um marga Íslendinga sem hafi flutt til Danmerkur. Julie sagðist mátulega bjartsýn fyrir fund utanríkisráðherra Grænlands og Danmerkur með ráðamönnum í Washington í dag þegar við ræddum við hana fyrr í dag. „Við vonum það besta en búum okkur undir það versta. Við erum vön að standa af okkur storminn í Grænlandi, við erum vön erfiðum veðuraðstæðum og nú erum við í þessum geópólitíska stormi. Svo við verðum að finna okkar innri kraft og ró og einblína á það sem við getum sjálf stjórnað akkúrat núna. Með andlegri fyrstu hjálp, að tala saman, borða grænlenskan mat og hafa það huggulegt og bíða,“ segir Julie. Nánar var rætt við hana og vendingar dagsins í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Segja má að niðurstaða fundarins í Washington hafi í stuttu máli verið sú að bandarísk stjórnvöld annars vegar, og grænlensk og dönsk hins vegar, séu sammála um að vera ósammála. Trump-stjórninn er ennþá á þeirri skoðun að Bandaríkin verði að eignast Grænland, en því leggjast hin ríkin alfarið gegn. Þá stendur til að setja á fót starfshóp embættismanna sem falið verður að leita lausna í deilunni og leiða til samstarfs. Julie segir að það hafi vissulega gripið um sig ákveðinn ótti meðal Grænlendinga, bæði í Grænlandi og annars staðar. Því hafi samtök Grænlendinga í Danmörku tekið sig saman og skipulagt samstöðufundi í þeirri viðleitni að leggja sitt af mörkum í baráttunni um Grænland. Hefur reynt á sálartetur Grænlendinga „Ég veit líka að það eru einhverjir í Grænlandi sem eru að hugsa um að flytja hreinlega til Danmerkur vegna alls þessa sem er í gangi. Svo það er mikilvægt fyrir okkur að senda skilaboð um að sama hvað verður þá erum við að sjálfsögðu tilbúin að hjálpa,“ segir Julie. Það sé gríðarlega mikilvægt að halda ró sinni, þrátt fyrir erfiðar aðstæður, og sýna samstöðu. Hún fagnar því að dönsk og grænlensk stjórnvöld hafi mætt samstillt til fundarins með Marco Rubio og JD Vance í dag. Á sama tíma og hún undirstrikar að Grænlendingar eigi sjálfir að fá að ráða örlögum sínum og um það hvort þeir á endanum sækist eftir sjálfstæði frá Danmörku, þá skipti mestu nú að leyfa Trump-stjórninni ekki að komast upp með að reyna að ala á sundrung milli Dana og Grænlendinga. „Grænlendingar eru allir undir miklum andlegum þrýstingi og þess vegna hefur það gríðarlega þýðingu að finna stuðning frá mörgum löndum og mörgum þjóðum. Svo gerið eitthvað, sýnið stuðning, það skiptir okkur svo miklu máli og við munum aldrei gleyma því.“
Grænland Danmörk Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Eftirlýstur og með vopn á sér Innlent Fleiri fréttir Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Sjá meira