Krónan standi í vegi fyrir innviðaframkvæmdum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. janúar 2026 13:56 Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar. Vísir/Vilhelm Íslenska krónan stendur í vegi fyrir að hægt sé að ráðast í stórar innviðaframkvæmdir að mati þingmanns Viðreisnar.
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, sem tók til máls undir liðnum störf þingsins á Alþingi í morgun sagði að allir þingmenn væru sammála um að vilja blómlega byggð hér á landi. Til að svo megi vera þurfi öfluga innviði. „Fljótlega mun fara fram fyrsta umræða um samgönguáætlun sem snýst akkúrat um þetta, að tryggja að úti um allt land geti verið blómleg byggð,“ segir hann. „Það kemur alltaf upp í umræðunni, sérstaklega í tengsl við jarðgöng, af hverju getum við ekki borað fleiri jarðgöng í einu? Af hverju getum við ekki gert eins og vinir okkar Færeyingar sem hafa borað talsvert meira af kílómetrum per íbúa en við hér á Íslandi og jafnframt hafa Norðmenn borað miklu fleiri kílómetra per íbúa en við hér á Íslandi. Ingvar telur þó að helsta hindrun Íslands til að geta borað jafn mörg jarðgöng og Færeyingar sé kostnaðurinn við innviðauppbyggingu. „Til að mynda kemur fram í skýrslu um Fjarðarheiðargöng og Fjarðagöng sem gefin var út af RHA að þegar þetta er skrifað er ávöxtunarkrafa á lengstu verðtryggð ríkisskuldabréf um 2,6%. Hjá nágrönnum okkar í Evrópu er víða notaður ávöxtunarstuðull þrjú til fjögur prósent en þar er raunávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa alla jafna lægri en á Íslandi,“ segir Ingvar. „Fjármagn er einfaldlega dýrara í íslenskum krónum en í stórum vestrænum gjaldmiðlum, sérstaklega miðað við evru sem er næststærsti gjaldmiðill heims.“ Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem fara á fram fyrir lok árs 2027, snúist meðal annars um þetta að mati Ingvars. Íslenska krónan standi því í vegi fyrir því að hægt sé að ráðast í stórar innviðaframkvæmdir um allt land.
Samgöngur Evrópusambandið Alþingi Íslenska krónan Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira