Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. janúar 2026 12:39 Shaheen segist ekki hafa trú á því að verstu sviðsmyndir rætist varðandi Grænland. Andstaða sé við málið meðal almennings í Bandaríkjunum og Trump fylgist vel með skoðanakönnunum. Getty/Anadolu/Nathan Posner „Ég er hér í dag vegna þess að milljónir Bandaríkjamanna hafa þungar áhyggjur af orðræðunni um yfirtöku Bandaríkjanna á Grænlandi, annað hvort með því að kaupa landið eða beita hervaldi,“ sagði öldungadeildarþingmaðurinn Jeanne Shaheen nú fyrir hádegi.
Shaheen, sem er Demókrati og situr í utanríkismálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins, er stödd í opinberri heimsókn í Danmörku ásamt þverpólitískri sendinefnd, til að sýna Dönum og Grænlendingum stuðning. Shaheen sagði alla öldungadeildarþingmennina í sendinefndinni styðja samband Bandaríkjanna og Danmerkur og Atlantshafsbandalagssamstarfið. Þá sagði hún orðræðu ráðamanna í Washington ekki aðeins til þess fallna að grafa undan sambandi Bandaríkjanna við Danmörku og Grænland heldur stuðla að sundrung innan Nató á tímum þegar andstæðingar bandalagsins leituðu allra leiða til að nýta sér það. Þingmaðurinn sagði yfirlýsingar Donald Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi koma niður á því trausti sem komist hefði á milli bandamanna síðustu áratugi. „Ef okkur er alvara um að takmarka áhrif Rússlands á Norðurslóðum og annars staðar þá er áhrifaríkasta leiðinn til þess að sigra Vladimir Pútín í Úkraínu og það er nákvæmlega þess vegna sem það er ekkert vit í þessari umræðu um Grænland,“ sagði hún. Shaheen sagði að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefði staðfest að það stæði ekki á Dönum ef Bandaríkjamenn vildu ráðast í framkvæmdir á Grænlandi, hvort sem það varðaði frekari hernaðaruppbyggingu eða námuvinnslu. Hún ítrekaði að það stuðlaði ekki að öryggi Bandaríkjamanna né Dana að rífa niður heimsskipanina eins og hún væri í dag. Það væri aðeins til hagsbóta fyrir einræðisherra í Moskvu og Pekíng.
Bandaríkin Grænland Donald Trump Danmörk Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira